STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða bjarta og fallega 83,3 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli í Maríubakka 6. Nýlega voru gólfefni íbúðar endurnýjuð ásamt eldhúsi ásamt því að skipt hefur verið um hurðar. Sameignin og húsið hafa fengið gott viðhald í gegnum tíðina og var járn og pappi á þaki endurnýjað um 2018, skipt var um gler og glugga í sameign ásamt flestum gluggum íbúðar. Sameign hefur verið máluð ásamt því að skipt var um teppi.
Íbúðin er 74,4 fm (merkt 03-0203) og geymslan er 8,9 fm (merkt 03-0004) samtals er eignin skráð 83,3 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa og hol er með harðparketi á gólfi og skáp.
Stofa er með harðparketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðvestursvalir með ágætis útsýni yfir borgina.
Eldhús er með harðparketi á gólfi, hvítri innréttingu og fallegri borðplötu með eikaráferð.
Svefnherbergin eru tvö og eru með harðparketi á gólfum og skápar í aðalsvefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, skúffur undir vask, wc og baðkar með sturtu.
Þvottahús er inn af eldhúsi og er með dúk á gólfi, vinnuborði, vask og skápum. Einnig er þurrkherbergi í sameign.
Geymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.