Fasteignaleitin
Skráð 28. maí 2026

Tangagata 15

EinbýlishúsVestfirðir/Ísafjörður-400
135.1 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.500.000 kr.
Fermetraverð
366.395 kr./m2
Fasteignamat
43.350.000 kr.
Brunabótamat
60.350.000 kr.
Mynd af Rúnar Örn Rafnsson
Rúnar Örn Rafnsson
Löggiltur fasteignasali
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2120644
Landnúmer
138820
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Inngangur
Sérinngangur
Rúnar Örn Rafnsson fasteignasali kynnir Tangagötu 15, Ísafirði.

Huggulegt einbýlishús með bílskúr á eignarlóð á besta stað á eyrinni. Húsið er timburhús og hefur verið töluvert endurnýjað á síðustu árum og setur fallegan svip á götumynd Tangagötunnar. Efri hæðin er undir súð og eru því nýtanlegir femetrar þar mun fleiri en skráningin segir til um. Birt stærð eignarinnar er skv. fasteignaskrá 135,1 m² sem skiptist þannig:
Aðalhæð 54,6 m². Efri hæð (undir súð) 22 m². Kjallari: 26,7 m² og frístandandi bílskúr: 31,8 m². Lóð eignarinnar er eignarlóð skráð: 224 m².
 
Aðalhæð:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum opnum skáp.
Úr forstofu er gengið inn í stórt þvottahús með góðu geymslurrými og vaski. 
Salerni er í rúmgóðu rými. Góðar innréttingar, sturtuklefi og flísalagt gólf.
Alrými hæðarinnar er bjart og parketlagt. Hol með góðum innbyggðum geymsluskáp, stofa, borðstofa og eldhús. Falleg hvít innrétting er í eldhúsi með góðu skápa og borðplássi og innbyggðri uppþvottavél. Úr eldhúsi / borðstofu er gengið út á verönd í bakgarði hússins. Úr stofu er stigi til efri hæðar. Einnig er hleri í holi alrýmis þar sem gengið er niður í kjallara hússins.

Efri hæð:
Komið er upp í gott og bjart parketlagt hol / sjónvarpsrými. Svefnherbergin eru þrjú með parketi á gólfum.
Öll efri hæðin er mun stærri en fermetratalan segir til um þar sem lofthæð er lægri undir súð, og þeir femetrar telja ekki í opinberum tölum.

Kjallari:
Gengið er niður í kjallara hússins í gegnum hlera í alrými aðalhæðarinnar. Rýmið í kjallaranum er skráð 26,7 m2.
Rýnið er nýtt sem geymsla og nýtist plássið mjög vel sem slíkt. Allar lagnir koma inn í kjallarann og eru því mjög aðgengilegar sé þess þörf.

Bílskúr:
Á lóð eignarinnar er bílskúr sem reistur var í kringum 1990. Skúrinn er 31,8 m2 skv. fasteignaskrá.
Ein hlið skúrsins er steypt en annað byggt úr timbri. Skúrinn er hrár að innan, að mestu óeinangraður, og hefur ekki verið fullkláraður.

Lóð / garður:
Bakvið húsið er skjólgóð afgirt lóð. Hluti lóðar er hellulagður, hluti er grasblettur og annað er malarlagt. Hægt er að ganga milli húss og bílskúrs inn á baklóðina.
Lóðin er eignarlóð.

Framkvæmdir að sögn eigenda:
2004 þegar núverandi eigendur keyptu var búið að einangra og klæða húsið að utan og skipta um þak. Frágangur á þaki, rennum og niðurföllum var klárað af núverandi eigendum.
2016 Þak heilmálað (hefur verið blettað síðan).
2017 Baðherbergi og þvottahús endurnýjað, klætt, einangrað, og skipt um lagnir bæði vatn og frárennsli í báðum rýmum.
2017 Herbergi á efri hæð (norður). Nýtt plastparket og nýr ofn.
2018 Útveggir byggðir upp og einangraðir ásamt loftklæðningu í alrými á aðalhæð, stofa og eldhús.
2021 Nýtt plastparket lagt á alrými, stofu og eldhús. Allt rafmagn endurnýjað. Nýir ofnar í stofu.
2021 Lokið við að skipta um öll gler í húsinu.
2021 Ný eldhúsinnrétting + ný tæki í eldhús. Skipt um allar lagnir, bæði vatn, frárennsli og rafmagn.
2022 Herbergi uppi (austur). Nýtt plastparket og nýr ofn.
2023 Nýr sturtuklefi settur upp í baðherbergi ásamt nýjum skápum (nema við vaskborð).
2025 Lokið við endurnýjun á herbergi á efri hæð (suður). Klæðning og einangrun endurnýjuð. Nýtt plastparket, raflagnir og ofn. Einnig lagað parket eftir þörfum í holi / sjónvarpsrými.
Húsið hefur verið málað að utan reglulega, þ.e. a.m.k. ein hlið á hverju ári. Þannig líður mest 4-5 ár á milli umferða.


Hér er um að ræða sérlega fallegt, gamalt og gott einbýli í Tangagötunni, sem margir telja fallegustu götu Ísafjarðar. Húsið stendur neðarlega á eyrinni og er því frábærlega staðsett á eignarlóð. Þær endurbætur sem gerðar hafa verið á húsinu síðustu ár gera eignina svo sannarlega mjög spennandi.


Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1990
31.8 m2
Fasteignanúmer
2120644
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.850.000 kr.

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skeljatangi 9
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Skeljatangi 9
Skeljatangi 9
102 Reykjavík
548 m2
Einbýlishús
824
1259 þ.kr./m2
690.000.000 kr.
Skoða eignina Sjafnargata 14
3D Sýn
Skoða eignina Sjafnargata 14
Sjafnargata 14
101 Reykjavík
384 m2
Einbýlishús
1027
1068 þ.kr./m2
410.000.000 kr.
Skoða eignina Lyngholt 2
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Lyngholt 2
Lyngholt 2
225 Garðabær
224.2 m2
Einbýlishús
524
789 þ.kr./m2
176.900.000 kr.
Skoða eignina Hvannakur 6
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Hvannakur 6
Hvannakur 6
210 Garðabær
247 m2
Einbýlishús
624
1113 þ.kr./m2
275.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin