Fasteignaleitin
Skráð 3. júní 2026

Eirhöfði 7A íb.501

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
161.4 m2
5 Herb.
Verð
198.000.000 kr.
Fermetraverð
1.226.766 kr./m2
Fasteignamat
136.600.000 kr.
Brunabótamat
98.400.000 kr.
Byggt 2025
5. hæð
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534547
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Guðný Ösp Ragnarsdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 665-8909, og Fasteignasalan TORG kynna glæsilega þakíbúð við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða.
Eirhöfði 7 er hluti af nýjum borgarhluta á Ártúnshöfða og býður upp á vandaðar íbúðir þar sem áhersla er lögð á hönnun, birtu og útsýni. [Skoða heimasíðu verkefnisins]
Kaupendum við Eirhöfða 7 býðst að nýta UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað kaup með 10% útborgun. 
Íbúð 0501 er glæsileg fimm herbergja þakíbúð á 5. hæð, samtals 190,7 fm. Þar af er íbúðin 181,8 fm og sérgeymsla 8,9 fm. Hún skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, eldhús, borðstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og anddyri.
Auglýst verð er fyrir íbúðina og sérgeymsluna, án bílskúrs og bílastæðis. Hægt er að kaupa sér bílskúr í lokaðri bílageymslu fyrir 25 milljónir króna til viðbótar og bílastæði fyrir 7 milljónir króna til viðbótar.

Meginalrými íbúðarinnar er opið og bjart. Þar tengjast stofa, borðstofa og eldhús, en stórir gluggar ramma inn útsýni yfir borgina, Esjuna, Snæfellsjökul og víðar. Önnur stofa býður upp á fjölbreytta nýtingu, til dæmis sem sjónvarpsstofa eða vinnurými.  Svefnherbergin eru þrjú og öll rúmgóð. Hjónaherbergið er með góðu skápaplássi og baðherbergið er skammt frá. Gestasnyrting er við anddyri.
Um 58 fm þaksvalir bjóða upp á frábært útisvæði með útsýni í margar áttir. Að auki eru 5,5 fm svalir út frá íbúðinni.

Innréttingar eru í dökkri eik frá Voké-III. Í íbúðinni eru Quartz borðplötur, Miele heimilistæki og GROHE blöndunartæki. Baðherbergið er flísalagt og í íbúðinni er vélræn loftræsting.

Húsin standa á Hamrinum á Ártúnshöfða, með útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi svæði. Stutt er í útivist við Elliðaárdal, strandstíga og göngu- og hjólaleiðir. Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulögð sameiginleg svæði. Undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðunum.

Nánari upplýsingar veita Guðný Ösp Ragnarsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 665-8909 eða á gudny@fstorg.is, og Elka Guðmundsdóttir, fasteignasali, í síma 863-8813 eða á elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dyrhamrar 2
Skoða eignina Dyrhamrar 2
Dyrhamrar 2
112 Reykjavík
109.8 m2
Fjölbýlishús
413
801 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Vættagil 6
Bílskúr
Skoða eignina Vættagil 6
Vættagil 6
603 Akureyri
161.9 m2
Parhús
524
660 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Byggðavegur 101f
Byggðavegur 101f
600 Akureyri
166.8 m2
Raðhús
524
527 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 24
Bílskúr
Álfhólsvegur 24
200 Kópavogur
165 m2
Raðhús
413
666 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin