Fasteignaleitin
Skráð 28. nóv. 2026

Fljótasel 4

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
241.9 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
619.678 kr./m2
Brunabótamat
120.750.000 kr.
Byggt 1978
Svalir
Baðkar
Sturtuklefi
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20568591
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Tveir inngangar

Domusnova fasteignasala og Árni Helgason lgfs hafa fengið í einkasölu einkar fallegt raðhús sem hefur verið talsvert endurnýjað að utan og innan á síðustu árum. Björt og falleg eign sem er vel staðsett, stutt í leiðir útúr bænum sem og í verslanir, skóla, leikskóla og aðra þjónustu. Frábær fjölskyldueign.
Vinsamlega athugið að bóka þarf skoðun með því að senda póst á arni@domusnova.is  


Aðkoma að raðhúsinu er frá góðu bílaplani sem rúmar tvo bíla, auk þess er eitt einkastæði á sameiginlegu bílastæði Fljótasels 2-18.  Gengið er inn í forstofu á fyrstu hæð. Þaðan er innangengt í bílskúr. Á fyrstu hæð er forstofuherbergi, lítið baðherbergi með sturtu, eitt lítið svefnherbergi og annað stærra. Gengið út í sólríkan garð.
Á annarri hæð eru samliggjandi borðstofa og stofa og þaðan er útgengt á svalir sem snúa í suðvestur. Stórt, bjart og fallegt eldhús og inn af því þvottahús með góðri innréttingu. Á hæðinni er gestasnyrting.
Á þriðju hæð er hjónaherbergi, þar sem útgengt er á svalir til suðvesturs, og stórt svefnherbergi sem hægt er að skipta í tvö minni. Á hæðinni er baðherbergi með sturtu og baðkari. Hér er einnig alrými undir súð, sem notað er sem sjónvarpsstofa og vinnuaðstaða, sem ekki telst með til fermetrafjölda.
Góður garður til suðvestur, sem nýtur sólar frá hádegi fram á kvöld. Mjög falleg og rúmgóð eign.

Smellið hér til að fá sent söluyfirlit. 
1.hæð
Forstofa með flísum á gólfi.
Innangengt í bílskúr.
Herbergi/skrifstofa með parketi á gólfi.
Gangur með góðu fatahengi, flísar á gólfi.
Tvö herbergi með parketi á gólfi. Tengingar eru til að setja upp eldhúsinnréttingu í öðru herberginu sem aldrei hafa verið nýttar.
Gestasnyrting er á hæðinni.
2. hæð
Borðstofa, stofa í einu rými með parketi á gólfi, stórir gluggar, og er útgengt á rúmgóðar flísalagðar svalir sem snúa í SV.
Endurnýjað eldhús með sérsmíðuðum innréttingum, háglans hvít innrétting, mjög góð eyja, innfeld lýsing, útsýni úr eldhúsglugga til fjalla. Flísalagt með hita í gólfi.
Þvottahús flísar á gólfi, opnanlegt fag, góðar sérsmíðaðar innréttingar.
Gestasnyrting með flísum á gólfi.
3. hæð
Gott hjónaherbergi með parketi á gólfi og útgengi á svalir, gott skápapláss.
Herbergi sem áður voru tvö herbergi og hafa verið sameinuð í eitt mjög rúmgott.
Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari, flísalagt í hólf og gólf.
Gott alrými/sjónvarpsstofa undir súð að hluta.

Raðhúsið hefur verið endurnýjað og hlotið gott viðhald á undangengnum árum. Eldhús og þvottahús á 2.h voru fallega endurnýjuð fyrir um 15 árum. Þetta er bjart eldhús, þar er mjög gott vinnupláss. Rafmagn í eldhúsi var endurnýjað við þær breytingar. Gler og ofnar hafa verið endurnýjuð þar sem þörf var á. Baðherbergi hafa einnig verið endurnýjuð. Þakið var endurnýjað fyrir tveimur árum. Ágætur garður er við húsið. Að auki er sameiginleg lóð með húsfélagi húsa 2-18.  

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
DN ehf
domusnova.is

Myndir (64)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 35
Opið hús:29. nóv. kl 14:45-15:15
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 35
Vorbraut 35
210 Garðabær
252,3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 33
Opið hús:29. nóv. kl 14:45-15:15
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 33
Vorbraut 33
210 Garðabær
252,3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3 (Vesturvin 2) íb 403
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
3-Mynd04.jpg
Ánanaust 3 (Vesturvin 2) íb 403
101 Reykjavík
102 m2
Fjölbýlishús
312
1093 þ.kr./m2
111.500.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 604
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (26).png
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 604
101 Reykjavík
174,5 m2
Fjölbýlishús
322
1284 þ.kr./m2
224.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin