Fasteignaleitin
Skráð 6. ágúst 2026

Fossvík 6

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
100 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
699.000 kr./m2
Byggt 2024
Sérinng.
Fasteignanúmer
25343072
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fasteignasalan Heimaland kynnir Fossvík 6, 800 Selfossi.

Um er að ræða fjögurra herbergja raðhús í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar, Jórvíkurhverfi. Húsið er byggt árið 2024 úr timbri og klætt að utan með báruáli og Bond álklæðningu en bárujárn er á þaki. Lóð skilast þökulögð og mulningur í bílaplani, steypt ruslatunnuskýli fylgir. 

Nánari lýsing eignar:
Íbúðin er skráð 100 fermetrar samkvæmt fasteignamati. Húsið selst á byggingarstigi 4, matstigi 7 eða fullbúin íbúð. 
Samkvæmt teikningu skiptist íbúðin í forstofu, alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu. 

Forstofa er flísalögð með fataskáp og fatahengi. 
Eldhús er parketlagt, rúmgóð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Spanhelluborð og bakarofn í innréttingu. 
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfum. Útgengt út á suðurlóð úr stofunni. 
Svefnherbergin 3 eru öll með fataskápum og parketi á gólfum 
Baðherbergi er flísalagt með innbyggðum klósettkassa og upphengdu salerni, rúmgóðri gólfsturtu með gleri, innréttingu og línskáp. 
Þvottahús er flísalagt með rúmgóðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 

Vel skipulögð íbúð í snyrtilegu raðhúsi á Selfossi sem vert er að skoða betur. 

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 868-7938, elisa@heimaland.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskildu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vallholt 16
3D Sýn
Opið hús:09. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vallholt 16
Vallholt 16
800 Selfoss
98.9 m2
Fjölbýlishús
312
546 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabrún 2
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hjallabrún 2
Hjallabrún 2
810 Hveragerði
146.5 m2
Parhús
412
Fasteignamat 92.250.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR -San Miguel De Salinas
Bílastæði
Efsta hæð
SPÁNAREIGNIR -San Miguel De Salinas
Spánn - Costa Blanca
100 m2
Fjölbýlishús
322
333 þ.kr./m2
33.300.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 39
Efsta hæð
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hverfisgata 39
Hverfisgata 39
101 Reykjavík
96.5 m2
Fjölbýlishús
312
776 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin