Fasteignaleitin
Skráð 7. okt. 2026

Hulduhlíð 8

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
158.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
145.000.000 kr.
Fermetraverð
913.098 kr./m2
Brunabótamat
78.450.000 kr.
Miklaborg
http://www.miklaborg.is
Byggt 2000
Pallur
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2250398
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Miklaborg kynnir: Endaraðhús á einni hæð í hinu eftirsótta Hlíðahverfi Mosfellsbæjar þaðan sem er örstutt í Lágafellsskóla, Sundlaugina og World Class og þægileg aðkoma frá Vesturlandsvegi. Garðurinn er einstaklega skjólgóður og pallur að framanverðu hefur nýst vel á góðum sumardögum. Bílskúr er aðskilinn frá húsi og er skráður 33,6 fm að stærð. Húsið var byggt árið 2000 og hefur eldhús, baðherbergi, gólfefni og allir ofnar verið endurnýjaðir á undanförnum árum. Einnig var þak endurnýjað sumarið 2025. Garður er í góðri rækt með fallegum þéttum víðisrunna ásamt fjölskrúðugum rifsberjarunna bakatil og gullregn sem plantað var fyrir nokkrum árum er nú þegar farið að skarta sínu fegursta. Virkilega notaleg og fjölskylduvænt heimili.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í S: 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Ljósar fallegar flísar á gólfi, fataskápur með hengi og hillum.

Hol: Rúmgott með góðri lofthæð parket á gólfi.

Stofa: Björt stofa með gluggum er vísa í suður þaðan sem Úlfarsfellið blasir við, parket á gólfi.

Eldhús: Endurnýjað að miklu leyti m.a. sett stór eldunareyja með span helluborði og innbyggðum háf í borði. Gott vinnupláss og ísskápur og innbyggð uppþvottavél sem fylgir með. Útgengt er út í garð frá eldhúsinu, kjörið fyrir grillið. Flísalagt gólf.

Svefnherbergi: Upprunalega þrjú talsins en eitt barnaherbergjanna hefur verið breytt í fataherbergi sem er innangengt í frá hjónaherbergi en breyta mætti þessu fyrirkomulagi í upprunalegt horf. Annað minna barnaherbergi sem snýr út að framanverðu.

Þvottahús: Þægilega stórt með skápainnréttingarstæðu fyrir þvottavél og þurrkara og mikið skápapláss fyrir ofan og neðan vélar. Nægt pláss fyrir aukaískáp t.d. Flísar á gólfi.

Bílskúr: 33,6 fermetrar að stærð en innangengt er í hann bakatil og svo er bílskúrshurð að framan. Hleðslustöð er á bílskúr að utanverðu sem fylgir með.

Smelltu hér fyrir söluyfirlit og nánari upplýsingar

Ekki þarf að fara mörgum orðum um vinsældir þessarar götu út frá staðsetningu þess en hér er um að ræða gott hús sem hefur töluvert verið endurnýjað m.a. skipt um gólfefni, ofnar endurnýjaðir sem og innréttingar og tæki eldhúss, baðherbergis og nú síðast var skipt um þakjárn árið 2025.

Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/10/201541.200.000 kr.50.900.000 kr.158.8 m2320.528 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 44 íb. 201
Bílastæði
Opið hús:29. okt. kl 17:15-17:45
Suðurgata 44 íb. 201
220 Hafnarfjörður
151,1 m2
Fjölbýlishús
423
1158 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159,7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 601
Bílastæði
Efsta hæð
Baughamar 5 íb. 601
221 Hafnarfjörður
154,7 m2
Fjölbýlishús
323
908 þ.kr./m2
140.500.000 kr.
Skoða eignina Úugata 72
Bílskúr
Opið hús:28. okt. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Úugata 72
Úugata 72
270 Mosfellsbær
209 m2
Parhús
524
669 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin