Elka lgf. s. 863-8813 og TORG fasteignasala kynnir fallegt og einstaklega vel skipulagt 6–7 herbergja raðhús á tveimur hæðum með skjólgóðum suðurgarði á frábærum stað við Urðarbrunn 92 í Úlfarsárdal.
Bjart og rúmgott 213,1 m² raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum 26,3 m² bílskúr. Í húsinu eru í dag fjögur rúmgóð svefnherbergi, sjónvarpshol, tvö baðherbergi og bjart alrými með mikilli lofthæð.
Garðurinn er fullbúinn, mjög skjólgóður og snýr til suðurs. Þar er um 50 m² timburverönd úr lerki, grasflöt, blómabeð og heitur pottur. Tvö einkabílastæði eru í innkeyrslu fyrir framan húsið og snjóbræðsla í bílaplaninu.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfanginu elka@fstorg.is.
Nánari lýsing
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi. Inn af forstofu er gestasalerni með upphengdu salerni. Innaf forstofu er einnig eitt svefnherbergi.
Bjart og opið alrými tengir saman stofu, borðstofu og eldhús á fallegan hátt. Þar er mikil lofthæð, stórir gluggar til suðurs og útgengi á góðan sólpall og í garðinn.
Eldhúsið er rúmgott með góðu vinnu- og skápaplássi, hvítri innréttingu frá IKEA með ljúflokunum og dökkri borðplötu frá Fanntófelli. Innbyggð tæki eru í eldhúsi.
Á efri hæð er rúmgott sjónvarpshol sem nýtist vel sem önnur setustofa og fjölskyldurými en væri hægt að breyta í fimmta svefnherbergið.
Svefnherbergin eru þrjú talsins á efri hæð, öll björt og rúmgóð. Útgengi á rúmgóðar svalir til suðurs af svefnherbergisgangi.
Baðherbergið er rúmgott og fallegt með hvítri innréttingu, dökkri borðplötu, upphengdu salerni og sturtu. Gert er ráð fyrir rúmgóðri walk-in sturtu og þarf aðeins að setja upp sturtugler og sturtusett í stað núverandi sturtuklefa.
Þvottahús er innan íbúðar á efri hæð með hvítri innréttingu.
Parketflísar eru á gólfum hússins fyrir utan baðherbergi og þvottahús þar sem eru ljósar 60 x 60 cm flísar frá Parka.
Hvítar innréttingar frá IKEA með ljúflokunum eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi og dökkar borðplötur frá Fanntófelli eru í eldhúsi og á baðherbergi. Innfelld lýsing er í loftum um allt húsið.
Snjallstýring er í húsinu og tengd Home Assistant. Kerfið er meðal annars notað við stýringu á heita pottinum og bílskúrshurð auk rakaskynjara í eldhúsi og þvottahúsi.
Heimilið hefur verið ilmefnalaust og að sögn seljenda voru byggingarefni og innréttingar valin með lágt VOC-gildi að leiðarljósi.
Bílskúrinn er innbyggður og skráður 26,3 m². Þar er hvít IKEA-innrétting, vaskur, aukatafla með þriggja fasa rafmagni og blöndunartæki með slöngu við bílskúrshurð (ath. að búið er að laga mynd af bílskúr lítillega með gervigreind).
Garðurinn er fullbúinn, einstaklega skjólgóður og snýr til suðurs. Þar er um 50 m² timburverönd, lítil grasflöt, falleg blómabeð og heitur pottur. Lagnir eru til staðar fyrir útisturtu og garðslöngu, staurar fyrir mögulega þakskyggni og rafmagnsinnstungur á þremur stöðum í garðinum.
Fyrir framan húsið eru tvö einkabílastæði í innkeyrslu með snjóbræðslu. Lagnir fyrir hleðslustöð eru tilbúnar utan á bílskúr og þar er einnig rafmagnsinnstunga.
Virkilega bjart, fallegt og einstaklega vel skipulagt fjölskylduhús á góðum stað í Úlfarsárdal.
Örstutt er í falleg náttúrusvæði og fjölbreyttar gönguleiðir. Dalskóli, leikskólar, Dalslaug og bókasafn eru í göngufæri ásamt Úlfarsfelli og Leirtjörn.
Lítil ljósmengun er á svæðinu og því má oft sjá norðurljós og stjörnubjartan himin úr garðinum og heita pottinum.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.