Mekihvoll 1. 851 Rangárþing ytra. Landssveitin. Fallegt 79.5 fm (92.5 fm) bjálkahús á tveimur hæðum að hluta og er það byggt á steyptum grunni sem er með skriðkjallara undir. Flott útsýni og fjallasýn er úr húsinu þar sem það stendur nokkuð hátt á 4.410 fm endalóð í götunni.
Frábært fjölskylduhús þar sem það geta auðveldlega verið 4 og jafnvel 5 svefnherbergi í því og því hentar húsið einnig vel fyrir hestafólk og ferðaþjónustu. Um er að ræða sumarhús sem er skiptist í 57.8 fm neðri hæð og 21.7 fm efri hæð og er það skráð 79.5 fm samkvæmt HMS og var byggt 2004.
Einnig er óskráð um 13 fm viðbygging við húsið sem skiptist í svefnherbergi og Saunaklefa / gufubað, sem mætti breyta í herbergi, þannig að eignin er samkvæmt því um 92.5 fm og getur verið með allt að 5 svefnherbergjum fyrir þá sem þess þurfa. Í húsinu er rafmagnshitatúpa fyrir neysluvatn og það er upphitað með rafmagnsofnum þannig að það er engin hætta á að hitalagnir frostspringi.Einnig er góð kamína sem er fljót að hita húsið upp þegar þess þarf. Húsið stendur á steyptum sökkli og er með skriðkjallari / lagnakjallara undir sem er mjög þægilegt að hafa til að komast að lögnum.
Sér borhola er fyrir kalda vatnið. Húsið skiptist á eftirfarandi hátt: Forstofa með furuplönkum á gólfi, fatahengi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og sturtu.
Svefnherbergi með furuplönkum á gólfi.
Eldhúsið er rúmgott með furuplönkum á gólfi, viðarinnréttingu með sambyggðri eldavél.
Stofan er með furuplönkum á gólfi, góðri lofthæð, fallegri kamínu og útgengi á mjög stóra verönd / sólpall.
Stigi er upp á efri hæðina sem er yfir hluta hússins eins og sést á myndunum og þar er eitt mjög rúmgott 21.7 fm svefnherbergi í dag.
Það mætti skipta þessu herbergi í tvö góð herbergi með frábæru útsýni. Af sólpallinum er gengið inn í viðbyggingu sem er um 13 fm og skiptist hún í svefnherbergi og sauna (gufubað) sem ekki inn í fm stærð hússins..
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Stór sólpallur er við húsið með skjólgirðingu og er hann skráður 97 fm að stærð.
Lóðin er 4.410 fm endalóð í götunni og stendur nokkuð hátt þannig að það er frábært útsýni og fögur fjallasýn úr húsinu. Lóðarleiga er um kr. 70.000 á ári.
Þetta er falleg eign á frábærum stað og hentar húsið vel sem fjölskylduhús fyrir litlar og stærri fjölskyldur, hestafólk og ferðaþjónustu. Glæsilegt útsýni og fjallasýn. Eigandi er tilbúin að skoða skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu eða Akureyri.Upplýsingar gefa: Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Björgvin Þór Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, s. 855-1544, netfang: bjorgvin@fasteignaland.is
Vilhjálmur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s. 822-8183, netfang: villi@fasteignaland.is
Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali, s.
692-3344, netfang:
hronn@fasteignaland.is