Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Hekluhraun 3

SumarhúsSuðurland/Hella-851
86.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
635.417 kr./m2
Fasteignamat
35.050.000 kr.
Brunabótamat
51.950.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2301471
Landnúmer
198146
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
-
Upphitun
Varmadæla / Rafmagn / Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Erling Proppé lgf. & REMAX kynna:  Fallegt og vel skipulagt 86,4 fm. sumarhús á einstökum stað á skipulögðu sumarhúsasvæði í Heklubyggð, Rangárþingi ytra. Húsið stendur á 18.600 fm. fallegri eignarlóð þar sem má byggja annað sumarhús, hámarks byggingarmagn 2-300m2. 

- Falleg stór lóð, 18.000 m2 
- Möguleiki á að stækka hús eða byggja annað hús 
- Heitur og kaldur pottur 
- Loftadúkur í allri eigninni og innfelld lýsing


Húsið samanstendur af stóru, björtu alrými með stofu og eldhúsi og góðri lofthæð, þremur svefnherbergjum, baðherbergi og geymsluskúr. Loftadúkur er í öllu húsinu ásamt innfelldri lýsingu sem gefur frábæra hljóðvist og fallegt útlit. Stór og góð verönd umlykur húsið þar sem er að finna heitan og kaldan pott. Húsið er hitað upp með varmadælu.

Lóðin er stór og með mikla möguleika, heimilt er að stækka húsið. Samkvæmt skipulagsskilmálum eru byggingarreitir rúmir og heimilt að reisa tvö sumarhús á hverri lóð, þar sem því verður komið við þá allt að 200-300 fm.  Fjarlægð milli húsa innan lóðar skal vera minnst 20 m. en þó má gestahús vera nær. Hús skal vera staðsett í samráði við byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.  Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Bílastæði eru staðsett á hverri lóð fyrir sig.

Einstök náttúrufegurð er á svæðinu, sést meðal annars í Heklu, Bjólfell og Búrfell.  Stutt inná hálendið, aðeins 1,5 klst. frá bænum og í Landmannalaugar frá húsi um 1 - 2 klst.

Sumarhúsafélag er í Heklubyggð, sem er hagsmunafélag sumarhúsaeigenda á svæðinu en viðhald vega innan svæðisins er meginverkefni þess auk þess sem haldin er fjölskyldusamkoma á vegum félagsins hverja verslunarmannahelgi.  

Leiðarvísir: Þegar komið er að Svínhaga að sunnanverðu er farið inn á Rangárvallaveg (nr. 264) af Suðurlandsvegi austan Hellu. Vestan Gunnarholts er síðan farið inn á Þingskálaveg (nr. 268) sem liggur að Svínahaga. Góðar gönguleiðatengingar eru um allt svæðið, m.a. með Rangá og Selsundslæk.  

STAÐSETNING Á GOOGLE MAPS MÁ SJÁ MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSSKILMÁLA FRÍSTUNDABYGGÐAR Í HEKLUBYGGÐ MÁ KYNNA SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

SJÁ SKIPULAGSUPPDRÁTT MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR 

Allar nánari upplýsingar:
Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.is


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir. 

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/06/201813.800.000 kr.11.000.000 kr.86.4 m2127.314 kr.
23/11/20094.960.000 kr.5.500.000 kr.86.4 m263.657 kr.Nei
21/06/20074.625.000 kr.24.900.000 kr.86.4 m2288.194 kr.
20/06/20074.625.000 kr.36.000.000 kr.345.6 m2104.166 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Einigrund 8
Skoða eignina Einigrund 8
Einigrund 8
300 Akranes
67.4 m2
Fjölbýlishús
211
662 þ.kr./m2
44.600.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 21
Skoða eignina Asparskógar 21
Asparskógar 21
300 Akranes
73.3 m2
Fjölbýlishús
312
749 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Arahólar 2
Skoða eignina Arahólar 2
Arahólar 2
111 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
848 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 204
Suðurhella 16 íb. 204
221 Hafnarfjörður
78.4 m2
Fjölbýlishús
211
764 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin