Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynna: Fiskakvísl 5. 5-6 herbergja íbúð á 2. hæð ásamt risi og rúmgóðum bílskúr til sölu í 110 Reykjavík
Íbúðin er í Ártúnsholtinu og er vel skipulögð. Eignin skiptist í anddyri, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi og fjögur eða mögulega 5 svefnherbergi. Geymsla og bílskúr á jarðhæð.
Samtals er eignin, 191,9 fm, íbúð á 2. hæð er 123,4 fm, rishæð er skráð 29 fm en er stærri að grunnfleti og bílskúr og geymsla á jarðhæð sem er samtals 39,5 fm.
Aðeins 4 íbúðir í stigaganginum, tvær á hverri hæð. Hiti í útitröppum og rúmgott bílastæði fyrir framan bílskúr sem fylgir íbúðinni.
Nánari lýsing
Forstofa með fatahengi og parket á gólfi.
Þvottahús er inn af forstofu með flísum á gólfi. Innrétting fyrir þvottavél. Vaskur.
Rúmgott hol og þaðan er gengið í herbergi, stofur, baðherbergi og eldhús.
Eldhús með útsýnisglugga, innrétting með bakaraofn í vinnuhæð. Borðkrókur. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í opnu og björtu rými með stórum gluggum. Útgengi á stórar suðursvalir. Parket á gólfum.
Hjónaherbergi er með stórum glugga, útgengi á suðursvalir, góðum skápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö, mjög rúmgóð og bæði með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með baðkari og sturtuaðstöðu. Hvítar flísar í hólf og gólf. Handklæðaofn.
Gengið upp stiga uppá rishæð. Á rishæðinni er hol og herbergi og er hægt er að breyta skipulagi. Gott geymslupláss er undir súð, ca 2ja metra breiðar. Flísar á gólfi rishæðar. Fjórir Velux þakgluggar.
Sérgeymsla á jarðhæð er 5,4 fm.
Bílskúr er 34,1 fm. með heitu og köldu vatni og sjálfvirkum hurðaropnara.
Sameiginlegt þurrkherbergi á jarðhæð. Þá fylgir íbúðinni skápur í sameign, mjög góður fyrir útiföt ofl.
Sameignin er snyrtileg og hefur verið vel við haldið.
Framkvæmdir og viðhald húss síðustu ár:
2020: Sameign og máluð og teppi endurnýjuð í stigagangi.
2022: Útitröppur við anddyri endursteyptar og lagnir í hitalögn endurnýjaðar.
2023: Þakframkvæmdir: Endurnýjun á þakklæðningu, þakgluggum, klæðningu á þakkant, þakrennum, þaktúðum og snjógildrum.
2025: Gluggar og bílskúrshurðir málaðar.
Eftirsótt staðsetning í góðu fjölskylduhverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla innan hverfisins. Einnig er stutt er í útivistarsvæði Elliðaárdals þar sem frábærar hjóla- og gönguleiðir eru í næsta nágrenni. Hverfið er vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins og stutt í helstu umferðaræðar borgarinnar.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.