Fasteignaleitin
Skráð 13. nóv. 2026

Bakkabraut 13a (505)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
132.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
180.000.000 kr.
Fermetraverð
1.358.491 kr./m2
Fasteignamat
2 kr.
Byggt 2026
5. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
49970133
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
505
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
1
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur

Miklaborg kynnir:

Glæsilega útsýnisþakíbúð með aukinni lofthæð, tvennum svölum og fallegri sjávarsýn. Íbúðir á efstu hæðum eru með þaksvölum með stórbrotnu útsýni til fjalla og yfir hafið. Frá íbúðunum blasir við útsýni til Bláfjalla og Bessastaða, auk víðáttumikils landslags höfuðborgarsvæðisins. Íbúðirnar eru með aukinni lofthæð og skilast tilbúin til innréttinga. Verð fyrir fullkláraða íbúð má finna í Nánari lýsingu að neðan. Allar íbúðirnar eru búnar sérstöku loftræstikerfi. Rýmin eru björt og notaleg þökk sé gólfhita og stórum gluggum. Þakíbúðirnar eru aðeins sýndar í einkasýningu.

Allar nánari upplýsingar veita Friðjón í s. 692 2704 og Friðrik í s. 616 1313

Nánari lýsing

Glæsileg útsýnisþakíbúð með tveimur svölum, annars vegar til suðvesturs og hins vegar til austurs. Íbúðin einkennist af björtum og opnum rýmum með aukinni lofthæð og fallegu flæði milli rýma.

Eignin skiptist í forstofu, rúmgott alrými með stofu, sjónvarpskrók, borðstofu og eldhúsi með eyju, góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Stórir gluggar tryggja mikla birtu og stórbrotið útsýni. Úr alrými er útgengt á suðvestur svalir.

Íbúðin er búin rúmgóðri hjónasvítu með innangengu fata- og baðherbergi. Jafnframt er annað rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús innan íbúðar.

Bílastæði nr B30. Tvennar svalir eru samtals 9,3 m2 og 6,4 m2 að stærð.

Kaupendur geta haft áhrif á efnisval og skipulag íbúðar komi þeir snemma að kaupum.

Gert er ráð fyrir afhendingu vorið 2027. Sjá nánar sölusíðu verkefnis HÉR !

Auglýst verð miðast við að íbúðin afhendist tilbúin til innréttinga og hefur kaupandi þá kost að haga hönnun og efnisvali eftir sínum stíl. Í boði er að fá íbúðir afhentar fullkláraðar án megingólfefna og eftir atvikum frágang arins og útisvæðis. Verð á íbúð 505 miðað við slík skil er kr. 200.000.000,- Sé þess óskað geta kaupendur valið um hönnunarþema, Yl eða Stein. Innréttingar verða þá frá Parka og Voke III og vönduð tæki frá Siemens, þmt. helluborð með innbyggðri viftu og þráðlausri stýringu, sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar.

Frystiskápar og vínkælar í völdum íbúðum. Íbúðirnar verða búnar snjöllu hússtjórnunarkerfi frá Free@home sem gerir íbúum kleift aðstýra hitastigi, lýsingu, gardínum og fleiru á einfaldan hátt. Tæknimaður sér um uppsetningu kerfisins í hverri íbúð og leiðbeinir um notkun þess. Nánari upplýsingar um endanleg skil fást hjá söluaðila.

Á Vesturbakka rísa 118 vandaðar eignir þar sem rík áhersla er lögð á fágaðan arkitektúr, tímalausa hönnun og nútímaþægindi, fyrir þau sem vilja aukin lífsgæði og fallega sjávarsýn.

Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vönduðu efnisvali og vel útfærðuskipulagi. Alrými þeirra eru björt og rúmgóð og skapa aðlaðandi umgjörð umdaglegt líf og samveru með fjölskyldu og vinum. Í hjarta byggðarinnar er skjólgóður inngarður og til suðurs tekur við hafnarsvæði Kársness sem er í umbreytingu, en þar munu mannlíf og náttúra mætast.

Fjölbreytt afþreyfing er í boði í frístundarými sem staðsett verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og er opið sameiginlegt fyrir íbúa í húsinu. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, útisvæði með heitum- og köldum potti ásamt saunu. Þá verður golfhermir og aðstaða fyrir pílukast.
Næg bílastæði verða á lóðinni en 103 sérmerkt stæði eru í bílakjallara auk þess sem 58 bílastæði verða á lóð hússins.

Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem spennandi framtíðarsýn Kópavogsbæjar er að taka á sig mynd. Skipulag svæðisins gerir meðal annars ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds sem munu glæða höfnina lífi. Fyrir framan Vesturbakka er gert ráð fyrir bryggju- og hafnaraðstöðu, sem veitir siglingaáhugafólki einstakt tækifæri til að hafa bát sinn við bryggju. Staðsetningin á Kársnesinu sameinar nálægð við náttúruna og fjölbreytta þjónustu. Með tilkomu Fossvogsbrúarinnar styrkist tengingin við Reykjavík ennfrekar og greið leið opnast að miðborginni, háskólasvæðunum og útivistarparadísinni í Nauthólsvík

Sjá upplýsingabækling HÉR !

Nánari upplýsingar veita :

Friðjón Örn Magnússon lgfs. í s. 692 2704 og fridjon@miklaborg.is

Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is


Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bakkabraut 13a (505)
Efsta hæð
Bakkabraut 13a (505)
200 Kópavogur
132,5 m2
Fjölbýlishús
322
1358 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116,1 m2
Fjölbýlishús
312
1197 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 420
Hleðslustöð
Opið hús:15. nóv. kl 13:30-14:00
Laugaborg íbúð 420
105 Reykjavík
112,1 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 320
Hleðslustöð
Opið hús:15. nóv. kl 13:30-14:00
Laugaborg íbúð 320
105 Reykjavík
107,5 m2
Fjölbýlishús
312
971 þ.kr./m2
104.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin