Fasteignaleitin
Skráð 30. sept. 2026

Möðrufell 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
79.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.000.000 kr.
Fermetraverð
670.038 kr./m2
Fasteignamat
51.550.000 kr.
Brunabótamat
41.450.000 kr.
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2052774
Landnúmer
112336
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta/ Upprunalegt
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta/upprunalegt
Þak
Endurnýjað 2012/2024
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Vantar yfirlýsingu húsfélags í Möðrufelli 3 - sjá á OPNU HÚSI. 
*** EIGNIN ER SELD EN ÞÓ MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN  ***

Mikill áhugi var fyrir eigninni og erum við með kaupendur á skrá sem eru að leita að sambærilegri eign. 

Ef þú ert með sambærilega eign og hefur áhuga að að fá verðmat þér að kostnaðarlausu smelltu þá HÉR 

Ef þú ert að leita að framtíðareign og vilt vera á lista fyrir sambærilegar eignir smelltu þá HÉR
 
______________________________________________________________________________

RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is / 774-1477) &
SALVÖR ÞÓRA Lgf. (salvor@remax.is / 844-1421) KYNNA:

Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3.hæð við Möðrufell 3 í Reykjavík. Eignin er snyrtileg og vel um gengin, með rúmgóðri stofu, tveimur góðum svefnherbergjum, góðu eldhúsi, baðherbergi með baðkari og þvottaaðstöðu innan íbúðar. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar og skjólsælar svalir með fallegu útsýni. Eignin er samtals 79,1 m², þar af er íbúð 73,3 m² og sérgeymsla 5,8 m². 

Helstu kostir
  • Rúmgóð og björt með fallegu útsýni yfir Elliðaárdal og til fjalla
  • Gott eldhús með fallegri eikarinnréttingu og góðu skápaplássi
  • Töluvert hefur verið unnið að viðhaldi hússins undanfarin ár
  • Stutt í skóla, leikskóla, þjónustu og útivist
  • Elliðaárdalurinn í næsta nágrenni
SMELLTU HÉR til að skoða eignina í 3D - MEÐ HÚSGÖGNUM
SMELLTU HÉR til að skoða eignina í 3D - ÁN HÚSGAGNA


Nánari lýsing
Forstofa og hol: Komið er inn í rúmgott og opið hol með góðu skápaplássi. Dökkar flísar eru á gólfi og þaðan er gott flæði inn í önnur rými eignarinnar.
Eldhús: Rúmgott og vel skipulagt eldhús með fallegri eikarinnréttingu og góðu skápaplássi. Dökk borðplata, flísar á milli skápa og góð vinnuaðstaða. Innbyggður ofn og helluborð ásamt háf. Í eldhúsi er einnig rúmgóður borðkrókur við glugga.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi og stórum gluggum sem hleypa inn mikilli birtu. Gott rými er fyrir bæði setustofu, vinnuaðstöðu og borðstofu eftir þörfum. Úr stofu er útgengt á svalir með góðu útsýni yfir nærumhverfið. 
Svalir: Skjólsælar svalir með góðu útsýni yfir hverfið og víðar. Svalirnar eru vel nýtanlegar með plássi fyrir grill, borð og stóla.
Hjónaherbergi: Hlýlegt hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi, þar á meðal stórum fataskáp með speglahurðum. Fallegir dökkgrænir veggir gefa rýminu notalegan karakter.
Svefnherbergi II: Gott aukaherbergi með parketi á gólfi og glugga til austurs með fallegu útsýni. Herbergið nýtist vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða skrifstofa.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, upphengdum skápum, vaskinnréttingu og salerni. Í dag er þvottavél innan baðherbergis en einnig er hægt að nýta þvottahús á jarðhæð í sameign ef vill. 
Geymsla: Eigninni fylgir 5,8 m² sérgeymsla.

Framkvæmdir og viðhald
Húsið, sem er steinsteypt og byggt árið 1974 hefur fengið gott viðhald og ýmsar framkvæmdir verið gerðar bæði á íbúðinni og húsinu utanverðu undanfarin ár:
2026 – Rafmagnstafla í íbúð endurnýjuð í byrjun sumars og innihurðar málaðar.
2024 – Viðgerðir framkvæmdar á vesturhlið þaks.
2024 – Allir ofnar í íbúð endurnýjaðir í ágúst.
2021 – Stigagangur teppalagður að nýju og málaður.
2019 – Svalir málaðar.
2018–2019 – Múrviðgerðir framkvæmdar og húsið málað að utan.
2017 – Gluggar á austurhlið hússins endurnýjaðir.
2014 – Austurhlið þaks tekin í gegn.
.
Staðsetning
Möðrufell liggur efst í hinu gróna Fellahverfi í Reykjavík þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu. Í næsta nágrenni er Elliðaárdalurinn og Elliðavatn í allri sinni dýrð með fjölbreyttum göngu- og hjólaleiðum og góðum útivistarmöguleikum. Staðsetningin sameinar þannig gott aðgengi að þjónustu og mikla nálægð við náttúru.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
    Salvör Þóra, lgf.í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is
    Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.is
     
-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum? Við tökum fagnandi við öllum tegundum eigna á skrá. 
Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.
Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 20 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband HÉR strax í dag og við aðstoðum þig/ykkur með glöðu geði :)

Hera Björk & Salvör Þóra, Löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/11/201721.250.000 kr.29.200.000 kr.79.1 m2369.152 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grýtubakki 22
Hleðslustöð
Opið hús:21. okt. kl 18:30-19:00
Skoða eignina Grýtubakki 22
Grýtubakki 22
109 Reykjavík
71 m2
Fjölbýlishús
312
759 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 4 (203)
55 ára og eldri
Suðurgata 4 (203)
230 Reykjanesbær
68,3 m2
Fjölbýlishús
211
615 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Hafnargata 73
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hafnargata 73
Hafnargata 73
230 Reykjanesbær
75,4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
595 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Veghúsastígur 1
Opið hús:24. okt. kl 17:00-17:30
Veghúsastígur 1
101 Reykjavík
56,7 m2
Fjölbýlishús
211
1198 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin