Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynnir:
Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum.
Heimasíða https://b24.isUm er að ræða nánar tiltekið íbúð
315 í Borgartúni 24a, íbúð. 3ja herbergja íbúð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 79 fm, þar af er íbúðarrými 79 fm og sérgeymsla er 7,6 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaaðstaða inn á baðherbergi. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Svalir snúa í norður.
Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati.
Bókið skoðun:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 - löggiltur fasteignasali. - netfang: atli@betristofan.is
Gunnar S. Jónsson, sími 899 5856 - löggiltur fasteignasali. - netfang: gunnar@betristofan.is
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 - löggiltur fasteignasali. - netfang: pall@betristofan.is
Þórir Skarphéðinsson, sími 844 9591- lögmaður og lgfs. - netfang: thorir@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir sími 866 1763 - löggiltur fasteignasali - netfang: dagrun@betristofan.is