Fasteignasalan TORG kynnir Hafnarbraut 12F á Kársnesinu í Kópavogi. Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2 hæð með svalir út frá stofu í nýlegu lyftuhúsi, ásamt rúmgóðu stæði í bílakjallara og sér geymslu. Íbúðin er skráð skv HMS 75,2 fm og þar af er geymsla 7,8 fm.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi er frá stofu út á svalir. Sér bílastæði og geymsla er staðsett í bílakjallara.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik Sigurðsson Fasteignasali, í síma 822-9415, tölvupóstur gunnar@fstorg.is.Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og góðum forstofuskáp.
Stofa er með parketi á gólfi, gólfsíðir gluggar að hluta og útgengt út á svalir til austur.
Eldhús er ásamt stofu í opnu alrými. Hvít innrétting með ágætu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og stæði í innréttingu fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu, opnanlegum speglaskáp, upphengdu salerni, handklæðaofni, sturtu með glerhurð og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílastæði í bílakjallara merkt E44.
Geymsla íbúðar er inn af bílastæðinu. Geymslan er 7,8 fm
Sameign tvær
hjóla- og vagnageymslur eru í húsinu.
Um er að ræða vel skipulagða eign á góðum stað á Kársnesi, stutt er í skóla, sundlaug, íþróttaaðstöðu, Sky Lagoon og aðra fjölbreytta þjónustu. Kársnesið er rótgróið hverfi sem er í mikilli uppbyggingu og fyrirhuguð er tenging við miðbæ Reykjavíkur með nýrri Fossvogsbrú. Brikk bakarí og Brasserie Kársnes eru í næsta húsi. Glænýr Kársnesskóli hefur verið tekinn í notkun; um er að ræða samrekinn leik- og grunnskóla í Holtagerði.Nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik Sigurðsson Fasteignasali, í síma 822-9415, tölvupóstur gunnar@fstorg.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.