Fasteignaland fasteignasala kynnir Sandvatnsvegur 6, Bláskógabyggð.
Glæsilegt sumarhús með gestahúsi.Sandvatnsveg 6 í landi Syðri-Reykja í Bláskógabyggð. Um er ræða 144,1 fm sem var byggt árið 2018. Um er ræða þrjú hús aðalhús og gestahús ásamt frístandandi geymslu.
Í þessu húsi er hitakútur fyrir neysluvatn og rafmagnsofnar. Þetta er hitaveitusvæði og er möguleiki að taka inn hitaveitu. Búið að leggja hitaveitulög undir hús. Húsið liggur á steyptum súlum.
Lýsing á sumarhúsi: Forstofa með fatahengi og furuplönkum á gólfi. Baðherbergið er með furuplönkum á gólfi, viðarinnréttingu, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkarar. Tvö herbergi með fururplönkum á gólfi. Stofan og eldhúsið eru í sama rými með furuplönkum á gólfi. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu, ofni, uppþvottavél og tvöföldum ísskáp.
Lýsing á gestahúsi: Setustofa/stofa með furuplönkum á gólfi. Herbergi með furuplönkum á gólfi og eldhúskrók. Baðherbergi með furuplönkum á gólfi, hvítri innréttingu og sturtuklefa.
Stór og mikill sólpallur með girðingu og skjólgirðingu, heitur pottur (rafmagnspottur).
Þetta er falleg og vel um gengin eign. Góða aðkoma og næg bílastæði.
Húsið hefur verið í útleigu og er möguleiki að taka við þeirri þjónustu.
Möguleiki er að fá innbú með í kaupum á eigninni.
Geymsla: Ca. 16 fm með rafmagnsofni.
Upplýsingar gefa: Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 692-3344, netfang: hronn@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Björgvin Þór Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, s. 855-1544, netfang: bjorgvin@fasteignaland.is