Til sölu verslunar og skrifstofuhúsnæði í Bolholti 4, 105 Reykjavík. Um er að ræð verslunarhæð, 2. hæð, hluti 5. hæðar og vörugeymslu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 863-5868, netfang bergsveinn@jofur.isNánari lýsing:Fasteign með númerinu F2012375, birt flatarmál er 643,2 m². Rýmið er þrír matshlutar, einn á jarðhæð, einn á 2. hæð og einn á 5. hæð. nánari skipting er:
01-0101 Verslun á jarðhæð stærð 245,4 m²
01-0201 Skrifstofa á 2,. hæð 219,2 m²
01-0502 Skrifstofa á 5. hæð 178,6 m²
Fasteign með númerinu F2012376, birt flatarmál er 170,5 m². Rýmið er á jarðhæð.
01-0102 Verslun á jarðhæð stærð 170,5 m².
Fasteign með númerinu F2012378, birt flatarmál er 186,7 m². Rýmið er á 2. hæð.
01-0202 Skrifstofa á 2. hæð stærð 186,7 m².
Fasteign með númerinu F2012384, birt flatarmál er 330,0 m², Rýmið er bakhús og er hægt að aka inn í rýmið.
02-0101 Iðnaðar-og vöruhús í bakhúsi, stærð 330,0 m². Um er að ræða timburhús með báruklæðningu.
Húsið er byggt árið 1962 og er steypt. Komið er að viðhaldi á ytrabyrði hússins og gluggum. Sameign er snyrtileg en er komin til ára sinna. Samkvæmt upplýsingum er lyfta bilanagjörn.
Bílastæði er við húsið, bæði að framan og aftan. Ekki er búið að uppfæra eignaskiptayfirlýsingu.
Húsfélagsyfirlýsing liggur ekki frammi.
Fasteignagjöld í söluyfirliti þessu eru útreiknuð.
Leigjandi jarðhæðar hefur forkaupsrétt af öllum eignarhutum Grensás ehf.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Jöfur ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
________________________________________________________________
Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur en 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 82.460.-