Falleg og mikið endurnýjuð vel skipulögð 107,7m² fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli. Vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning. Gengið er upp eina og hálfa hæð. Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Gott eldhús. Rúmgóðar suð-vestursvalir. Stutt í grunnskóla og hina ýmsu verslun og þjónustu auk þess sem örstutt göngufæri er í náttúruparadísina í Laugardal. Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni. Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 107,7m², þar af er geymsla skráð 9,1m².
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú herbergi og baðerbergi.
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Anddyri/hol er rúmgott .
Stofa er rúmgóð og björt með nýlegum gluggum. Útgengi á góðar suðursvalir.
Eldhús með fallegri innréttingu, kvartsteinn á borði, innbyggð uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðum skápum.
Barnaherbergin eru tvö og eru bæði rúmgóð.
Baðherbergið hefur verið innréttað frá grunni. Þar er nú sturta, vegghengt salerni, góð innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 9,1 m² sérgeymsla í kjallara.
Sameign: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Lóð/Garður: Stór og sameiginlegur garður er bak við húsið.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð frá 2020. Má þar nefna.- Gólf flotað
- Nýtt vínilparket frá Agli Árnasyni
- Nýjar hurðar frá Agli Árnasyni
- Nýtt eldhús, borðplata frá Granítsmiðjunni, Kvartsteinn.
- Nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina, innstundur og slökkvarar endurnýjaðir og ný rafmagnstafla
- Baðherbergi var innréttað frá grunni
- Skipt var um ofnakrana og leiðslur að þeim voru endurnýjaðar, nýr ofn á baðherbergi
- Nýjir fataskápar á gang, hjónaherbergi og stærra barnaherbergið
Framkvæmdir á vegum húsfélagsins að Álfheimum 50-54. Viðhald undanfarin ár.2004 - Skipt um útidyrahurðir inn í 3 stigaganga blokkarinnar
2007 - Skipt um svalahandrið og settar glerhliðar á allar svalir í húsinu. Rafmagnstöflur fyrir pr. stigagang endurnýjaðar.
2012 - Drenað í kringum blokk garð megin og báða enda blokkarinnar.
2015 - Stigangur í nr. 54 var málaður, lögð ný teppi og sett nýtt plast á stigahandrið. Samhliða því þá var skipt um allar dyr inn í íbúðir og settar eldvarnarhurðir.
2020 - Skipt um alla glugga og svalahurð
2020 - Þakið endurnýjað nema sperrur.
2020 - Blokkin múrviðgerð og máluð.
2020 - Eldvarnarhurðir settar í geymslu gang undir allri blokkinni. Samhliða var blokkin tekin út m.t.t. eldvarna og bætt með tilkomu slökkvitækja, reykskynjara og flóttaleið merkt.
2023 - Hleðslustöðvar á bílastæði
2023 - Eldvarnarhurðir í sameign
2026 - Lagnir voru skoðaðar og kom skoðun vel út. Einnig kom í ljós að dren var í góðu lagi.
2026 - Ónýtt hekk var fjarlægt í kringum húsið og ný tré gróðursett
Frábær staðsetning við hliðina á Laugardalnum með fjölbreytta þjónustu og verslanir allt í kring. Líkamsræktarstöðin Hreyfing, TBR húsið er í göngufæri. Falleg útivistarsvæði í nágrenninu. Þá er stutt í alla helstu þjónustu eins og Glæsibæ með alla þá þjónustu sem þar er að finna og einnig í Skeifuna. Skóli og leikskóli eru í göngufæri án þess að þörf sé að fara yfir umferðargötu. Eins er stutt í framhaldsskóla.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is