Eignamiðlun kynnir:
Ákaflega fallegt og mikið endurnýjað steinsteypt einbýlishús á rólegum stað við Lokastíg í miðbæ Reykjavíkur. Sannkölluð miðbæjarperla. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á undanförnum árum með afar smekklegum hætti og með virðingu fyrir aldri og anda hússins. Nýtt eldhús, baðherbergi og gólfefni. Allar innihurðir, gluggar og gereft hafa verið pússuð upp og lökkuð. Fallegir gólf- og loftlistar setja svo sterkan svip á húsið. Gólfhiti er á jarðhæð hússins. Húsið er staðsett á rólegum stað við Lokastíg en þó steinsnar frá öllu sem miðborgarlífið hefur upp á að bjóða.Eignin stendur á eignarlóð og er skráð 162,2 fm. Húsið telur forstofu, rúmgóðar stofur, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stórt opið rými í risi, þvottahús og geymslu. Góðar svalir og fallegur bakgarður. Húsið er steinsteypt á þremur hæðum með endurnýjuðum timburgólfum milli hæða.
Nánari upplýsingar veitir Lilja s: 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
**Sækja söluyfirlit**Nánari lýsing:Jarðhæð:Forstofa: Björt og rúmgóð með fallegum marmaraflísum á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Einstaklega fallegur, panelklæddur gangur með marmaraflísum á gólfi. Náttúruleg birta lýsir upp ganginn um gler ofan við hurðir.
Svefnherbergi 1: Bjart og rúmgott með fallegu harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Bjart og rúmgott með fallegu harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Nýuppgert baðherbergi. Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu Burlington salerni, fallegri innréttingu með marmaraborðplötu, stórri walk-in sturtu og handklæðaofni. Góður gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús: Mjög rúmgott með nýrri innréttingu og góðu skápaplássi.
Geymsla: Köld geymsla er undir svölum efri hæðar.
Fallegur, teppalagður timburstigi liggur upp á næstu hæð.
Efri hæð:Stigapallur: Bjartur og fallegur með þakgluggum og harðparketi á gólfi. Góð vinnuaðstaða undir glugga.
Eldhús: Afar fallegt, nýuppgert eldhús sem opið er við stofu. Eldhúsfrontar eru frá Haf Studio. Glæsileg SMEG eldavél og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Einstaklega falleg marmaraborðplatan setur svo punktinn yfir i-ið.
Stofur: Mjög rúmgóðar og bjartar með fallegum gluggum og harðparketi á gólfi.
Borðstofa: Rúmgóð og björt og er opin við stofur og eldhús. Útgengi á rúmgóðar svalir frá borðstofu.
Rishæð:Risið er opið og bjart með tveimur stórum kvistum og góðri lofthæð. Gluggar á öllum hliðum. Fallegt harðparket á gólfi. Rýmið er hægt að nýta með ýmsum hætti og væri auðvelt að koma þar fyrir þriðja og jafnvel fjórða svefnherberginu. Er í dag nýtt sem stofa og vinnuaðstaða.
Garður og lóð:Fallegur, gróinn bakgarður með hellulagðri verönd er aftan við hús. Búið er að tengja hleðslustöð við bílastæði.
Framkvæmdir 2024/2025:Skipt um allar neysluvatnslagnir og varmaskiptir settur upp fyrir neysluvatn.
Gólfhiti lagður á alla jarðhæð (utan geymslu) og gólf flotuð.
Gólffjalir á miðhæð og rishæð fjarlægðar. Gólf styrkt og rétt af og nýjar gólfplötur lagðar.
Eldhús endurnýjað. Frontar frá Haf studio. Marmara borðplata. Smeg eldavél 90cm. Ný blöndunartæki, vaskur, uppþvottavél og ísskápur.
Baðherbergi allt tekið í gegn. Gólfhiti, nýjar flísar á veggjum og gólfi. Ný blöndunartæki og klósett frá Burlington. Marmara borðplata.
Öll gólfefni endurnýjuð. Nýjar flísar í forstofu, gangi, þvottahúsi og baðherbergi. Nýtt harðparket í öðrum rýmum hússins.
Allt húsið málað að innan. Veggir, loft, hurðar, gluggapóstar, gluggakarmar og gólflistar/loftlistar. Nýir gólf- og loftlistar eru á flestum stöðum í húsinu.
Allar innihurðar gerðar upp. Skipt um hurðarhúna og hjarir og hurðar pússaðar og málaðar.
Nýir rofar og tenglar um allt hús.
Stigar pússaðir og málaðir. Stigar teppalagðir.
Nýjar rúllugardínur í stofugluggum og herbergjum.
Nýjar felligardínur í eldhúsi, borðstofu, baði og þvottahúsi.
Nýir skápar í þvottahús og inngang bakdyramegin.
2020: (fyrri eigendur)Rafmagnstafla yfirfarin og endurnýjuð og hleðslustöð sett við bílastæði.
Allar nánir upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook