Hraunhamar fassteignasala kynnir fallega og bjarta fjögurra herbergja 113 fm endaíbúð með sérinngangi á efri hæð (efstu) í litlu fjölbýli Áslandinu Hfj. Eignin er þó nokkuð endurnýjuð á smekklegan hátt á sl. árum. Tvennar svalir.Myndarleg fjölskyldueign í þessu eftirsótta hverfi með góðu útsýni þar sem skólar, gönguleiðir og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.Sér inngangur og björt forstofa með fataskáp og þaðan er gengið inn á parketlagðan gang. Úr forstofu er
rúmgott herbergi með harðparketi á gólfum og skápum. Á gangi eru tvö svefnherbergi og baðherbergi og þar af er rúmgott
hjónaherbergi með miklu skápaplássi og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi er með góðum skáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í fallegu og björtu rými þar sem útgengt er út á
suð/austur svalir. Í fallegu björtu
eldhúsinu er nýleg hvít innrétting með miklu skápaplássi og
borðkrók. Úr borðkrók er útgengt út á
norð-vestur svalir. (grillsvalir) Harðparket á gólfum. Snyrtilegur garður, hjóla og vagnageymsla.
Húsið sjálft er afar fallegt og klætt að utan og því viðhaldslétt. Nánari lýsing:Anddyri: 5,4fm. Flísalagt, bjart með glugga og góðum fataskáp.
Forstofuherbergi: 12,2fm. parketi á gólfum og tvöfaldur skápur.
Hjónaherbergi: 12,9fm. parket á gólfi og þrír tvöfaldir skápar.
Barnaherbergi: 8fm. Parket á gólfi og tvöfaldur skápur.
Baðherbergi:6,4fm. Flísalagt í hólf og gólf,nýleg innrétting, (2021) skápur, baðkar og sturtuaðstaða.
Eldhús:11,7fm. Nýleg hvít innrétting og grár plastlagður eldhúsbekkur, stórt span helluborð, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, nýlegur háfur, lökkuð álplata á vegg fyrir aftan eldavél, borðkrókur þar sem útgengt er á svalir. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: 25,2fm. Björt og með fallegu útsýni, útgengt út á rúmgóðar suðursvalir. Harðparket á gólfi.
Þvottahús og geymsla: 9,2fm. Flísalagt rými innan íbúðar með glugga og skolvaski. Skv. teikningu eru þessi rými aðskilin en búið er að opna á milli rýmanna þar sem gengið inn af gangi.
Þetta er áhugaverð eign í flottu viðhaldsléttu fjölbýli sem vert er að skoða frekar. Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.