Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Snægil 13 íbúð 201 - Rúmgóð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Giljahverfi með 29,0 m² bílskúr - heildarstærð 131,1 m².Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofan er með flísum á gólfi, tvöföldum fataskáp og skúffueiningu.
Eldhúsið er með mahóníspónlagðri innréttingu, flísum á milli skápa og ljósu harðparketi. þar er Innfelldur ísskápur og uppþvottavél sem geta fylgt með við sölu eignarinnar. Nýlega var skipt um brautir í öllum skúffum eldhúsinnréttingarinnar og bekkplötu.
Stofan er björt og rúmgóð með ljósu harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á steyptar vestursvalir.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu harðparketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Þvottahúsið er inn af forstofu með dúk á gólfi og bekk með vaski.
Geymslan er inn af þvottahúsi með dúk á gólfi. Gluggi er á geymslunni og því getur hún nýst vel sem fjórða svefnherbergi eða vinnuaðstaða.
Bílskúrinn er skráður 29,0 m² að stærð og er vestastur af bílskúrunum. Þar er lakkað gólf, rafdrifin innkeyrsluhurð, ljós innrétting með skolvaski og geymsluloft yfir um helming bílskúrsins. Nýlega var dregið þriggja fasa rafmagn í skúrinn
Annað:- Nýlega var skipt um gólfefni í íbúðinni.
- Nýlega var skipt um brautir í skúffum eldhúsinnréttingarinnar og bekkplötu.
- Sameiginlegt geymsluloft er yfir íbúðum, er það opnað á stigapalli á efri hæð.
- Sameiginlegur geymsluskúr er fyrir framan húsið.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.