Fasteignaleitin
Opið hús:15. júní kl 17:00-17:30
Skráð 9. júní 2026

Drápuhlíð 48

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
120.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
822.795 kr./m2
Fasteignamat
94.850.000 kr.
Brunabótamat
64.000.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2031174
Landnúmer
107223
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjuð í sökkli hússins og út árið 2004
Raflagnir
Bætt við tenglum og sett ný rafmagnstafla í kústaskáp í eldhúsi árið 2017. 
Frárennslislagnir
Endurnýjað í sökkli hússins og út árið 2004
Gluggar / Gler
Komin tími á endurnýjun
Þak
Þakjárn endurnýjað árið 2001
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, suður svalir
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Rætt hefur verið um að skipta út gluggum þar sem á við og mála húsið og þakið. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin en sem komið er, en vitað er að þess gerist þörf, það hefur alveg verið rætt. Kaupendur taka við eigninni upplýst um það.
Gallar
Það er kominn tími á að endurnýja glugga á bæði austur og suðurhlið hússins. Glugginn inn á baði er sérstaklega illa farinn. 
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 120,2 fm. fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi að Drápuhlíð 48, 105 Reykjavík. Sér merkt bílastæði fylgir eigninni. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og suður svalir. 
Íbúðin hefur verið huggulega endurnýjuð,  þar sem gólfefni, eldhús, hurðir og fataskápar hafa verið uppfærð á smekklegan hátt. Rýmin eru samfelld og hlýleg, með fallegu flæði milli gangs, svefnherbergja, stofu og eldhúss.
Með íbúðinni fylgir einnig notalegur svalakrókur og aðgangur að gróðursælum sameiginlegum garði sem setur skemmtilegan svip á heildina.

Eignin nýtist vel fyrir fjölskyldu eða þá sem vilja góða og rúmgóða íbúð á miðlægum stað.

Stutt er í fjölbreytta þjónustu, skóla, leikskóla, háskóla og verslun, þar á meðal Kringluna.

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is


Nánari lýsing: 

Sérinngangur, forstofa með teppi á gólfi og aðgengi niðri í kjallara þar sem er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla íbúðar.
Hol, gangur er rúmgóður og breiður með fataskáp og nýlegt parket sem flæðir inn í öll svefnherbergin þrjú og inn í alrýmið sem tengir saman borðstofu, stofu og eldhús. 
Stofa og borðstofa eru í opnu, rúmgóðu og björtu alrými með elshúsinu Gluggar veita birti inn frá báðum endum þess. Útgengi er út frá stofu út á suður svalir. Fallegt og vel endurnýjað eldhús með hvítum innréttingum og dökkum vinnufleti, færanlegri eyju.  Eldhúsið er vel skipulagt, gott skápa- skúffu, og vinnupláss. Steinn á borðum, undirlímdur vaskur og bökunarofn í vinnuhæð. Kælir með frystir er innbyggður ásamt uppþvottavélinni. Búið er að hanna mjög smekklegan setbekk við borðstofuborðið, sem nýtist líka sem geymsluhirsla. Timburfjalir frá gólfi að lofti er til að aðskilja og setur flottan svip á rýmið ásamt niðurteknu loftu þar yfir með innfelld ljós og óbeina lýsingu.  Hjónaherbergið er mjög rúmgott með gott skápapláss / nýlegum fataskápum, það herbergi er í dag nýtt sem barnaherbergi.  Hin herbergin tvö eru einnig rúmgóð og með nýlegum fataskápum. 
Baðherbergið er endurnýjað og klætt dökkum flísum á gólfi og upp meðfram baðkarinu. Baðinnrétting er hvít með hvítri handlaug og tveimur skúffum. Handklæðaofn þar á móti og upphengt salerni þar við hlið. Opnalegur gluggi er inn á baðaherberginu.

Sameiginlegur garður er stór og gróinn með grasflöt og skjólgóðu umhverfi. Hann gefur heimilinu góða útiveru-möguleika.

Samkvæmt upplýsingum frá seljendum hefur eftirfarandi atriði í húsinu verið framkvæmd. 
Árið 2001, sett ný þakklæðning á, verktakar Pálmatré 
Árið 2004, sett ný klóak- og vatnslögn í sökkul hússins og út í götu. 
Árið 2005 var sprunguviðgerð utanhúss og meira þannig árið 2006
Árið 2007, var málað utanhúss m/ háþr.þvotti og sílanáferð.  Málning: Kópal Steintex Marmarahvítt,  Alhliðamálun ehf.
Árið 2010, var þakið gert fuglhelt með járnlista, þar sem starrinn var farinn að gera sér hreiður þar.
Árið 2011, var gluggi í kjallara á austurhlið hússins endurnýjaður.
Árið 2013, voru niðurföll frá þaki endurnýjuð.  Ás-smíði
Árið 2014, var gluggi í þvottahúsi endurnýjaður. Gluggi frá Fagport
Árið 2020, var tröppuviðgerð, múr og pússning
Árið 2024, var  sprunguviðgerðir utanhúss og ruslaskýli sett upp fyrir framan hús
Árið 2025, var dren sunnanmegin við húsið lagfært. 
  
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/03/201535.300.000 kr.40.000.000 kr.120.2 m2332.778 kr.
06/05/201328.750.000 kr.32.000.000 kr.120.2 m2266.222 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barmahlíð 6
Opið hús:09. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Barmahlíð 6
Barmahlíð 6
105 Reykjavík
72.5 m2
Fjölbýlishús
312
840 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 602
Bílastæði
Opið hús:13. júní kl 12:00-12:30
Laugaborg íbúð 602
105 Reykjavík
140.7 m2
Fjölbýlishús
423
1507 þ.kr./m2
212.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 401
Bílastæði
Opið hús:13. júní kl 12:00-12:30
Laugaborg íbúð 401
105 Reykjavík
144.2 m2
Fjölbýlishús
43
1241 þ.kr./m2
179.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 509
Opið hús:13. júní kl 12:00-12:30
Laugaborg íbúð 509
105 Reykjavík
112.3 m2
Fjölbýlishús
312
1023 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin