Einar Pálsson lgf. og Borg fasteignasala kynna Grænamýri 13, Akureyri. Fjögurra herbergja einbýlishús sem er alls 105 m² að stærð með stórum garði.Húsið er steinsteypt, reist ofan á steyptan kjallara og skiptist með eftirtöldum hætti; Kjallari, 18,3 m²: Gengið niður í kjallara úr forstofu að vestan. Kjallarinn skiptist í þvottarými, og tvö minni geymslurými. Hæð, 86,7 m²: Tveir inngangar, stofa, eldhús, 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Tveir inngangar eru að eigninni, að austan og vestan. Flísar eru á gólfi í forstofum og á baðherbergi. Vínilparket á öðrum herbergjum, en í kjallara eru máluð gólf. Eitt svefnherbergi er með föstum fataskáp. Á baðherbergi er nýlegt upphengt klósett og baðkar.
Stór og fallegur gróin garður er við eignina, hann snýr í sólríka suðurátt. Þar er 50 fermetra afgirt hundagerði, og inn í því lítill geymsluskúr. Gróðurhús / vinnuaðstaða, u.þ.b. 15 fm, með heitavatnsofni og rafmagni er einnig á lóðinni. Bílastæði er á lóð austan við húsið með góðu aðgengi inn í garðinn. Vatnskrani er í garði við húsið að sunnanverðu, með köldu vatni. Þó nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á síðustu árum. Mest allt rafmagn er nýlegt og nýleg rafmagnstafla. Nýlegar hitalagnir, gólfihiti settur á öll rými nema svefnherbergi, þar eru nýlegir ofnar og lagnir. Fræst var í gólf, flotað og lagður gólfhiti árið 2020. Gler endurnýjað að hluta á efri hæð, nýjir gluggar í kjallara. Nýlega var drenað í kringum húsið og settar sérsmíðaðar álþakrennur 2025. Nýlega var þak hreinsað af eldri einangrun og einangrað upp á nýtt með 10'' steinull. Stór fataskápur í einu svefnherberginu er nýlegur. Girðing í garði og kaldur geymsluskúr er nýlegt. Búið að grisja mikið af trjám og
runnum í garði. Ný dæla í brunni, sem er við húsið og tekur við öllu fráveituvatni.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is
-Eignin er í einkasölu.
-Vel staðsett eign, stutt í miðbæ, verslun, skóla og sundlaug.
-Núverandi skipulag er ekki í samræmi við teikningu.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði