Fasteignaleitin
Skráð 3. júní 2026

Bjarmastígur 3

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
101.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
589.567 kr./m2
Fasteignamat
50.800.000 kr.
Brunabótamat
53.500.000 kr.
Fasteignanúmer
2145261
Landnúmer
147320
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna með stolti: ***SÉRHÆÐ - FRÁBÆR STAÐSETNING***
Vel skipulögð og falleg efri sérhæð á vinsælum stað rétt ofan við miðbæ Akureyrar
Um er að ræða bjarta og snyrtilega efri sérhæð með fallegu útsýni yfir miðbæ Akureyrar og Vaðlaheiði. Eignin er samtals 101,7m2 og skiptist í um 80m2 íbúðarrými á hæðinni ásamt rúmgóðum sérgeymslum/herbergjum í kjallara.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

Nánari lýsing eignar:
Forstofa.
Sérinngangur er á jarðhæð hússins. Flísar eru á gólfi og teppalagður stigi liggur upp á hæðina. Frá forstofu er einnig aðgengi að sameign hússins.
Hol/gangur. Rúmgott hol með fallegu plankaparketi á gólfi.
Baðherbergi. Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum og er flísalagt bæði á gólfi og veggjum. Innfelld lýsing í lofti, snyrtileg innrétting og upphengt salerni gefa rýminu nútímalegt yfirbragð.
Stofa. Björt og notaleg stofa með gluggum á tvo vegu sem tryggja góða birtu. Frá stofunni nýtur fallegs útsýnis yfir bæinn og nærliggjandi svæði.
Eldhús. Vel skipulagt eldhús með góðri innréttingu og ríkulegu skápa- og skúffuplássi.
Svefnherbergi. Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergið er rúmgott með plankaparketi á gólfi, góðum fataskáp og útgengi á litlar svalir. Barnaherbergið er einnig parketlagt og þaðan er gott útsýni.
Þvottahús. Sameiginlegt þvottahús er staðsett í kjallara hússins.
Sérgeymslur/herbergi. Í kjallara eru tvær rúmgóðar sérgeymslur. Önnur þeirra er parketlögð, með glugga og vaski, sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Frábær staðsetning í göngufæri við miðbæ Akureyrar. Fallegt útsýni yfir miðbæinn og Vaðlaheiði.
Drenað og jarðvegsskipt við húsið fyrir nokkrum árum. Steyptur stoðveggur og stétt fyrir framan hús hafa verið endurnýjuð. Hitalagnir í tröppum. Nýlega búið að pússa upp gólf á hæðinni og hvítlakka þau.
Rúmgóðar sérgeymslur með fjölbreyttum nýtingarmöguleikum.
Þetta er snyrtileg og vel viðhaldin eign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og mannlíf miðbæjarins.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/07/202338.650.000 kr.48.500.000 kr.101.6 m2477.362 kr.
10/10/202230.300.000 kr.44.500.000 kr.101.6 m2437.992 kr.
06/12/201822.350.000 kr.29.000.000 kr.101.6 m2285.433 kr.
19/03/201416.550.000 kr.21.595.000 kr.101.6 m2212.549 kr.
21/02/200711.930.000 kr.13.500.000 kr.101.6 m2132.874 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringbraut 38
Opið hús:03. júní kl 18:00-18:30
Skoða eignina Hringbraut 38
Hringbraut 38
220 Hafnarfjörður
66.5 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Staðarborg 17C
Skoða eignina Staðarborg 17C
Staðarborg 17C
190 Vogar
93 m2
Raðhús
413
704 þ.kr./m2
65.500.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7A íb.401
Bílskúr
Bílastæði
Opið hús:07. júní kl 13:00-14:00
Eirhöfði 7A íb.401
110 Reykjavík
188.5 m2
Fjölbýlishús
4
1141 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Staðarborg 17B
Skoða eignina Staðarborg 17B
Staðarborg 17B
190 Vogar
93 m2
Raðhús
413
704 þ.kr./m2
65.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin