Fasteignaleitin
Skráð 26. feb. 2026

Hvanneyrarbraut 62

FjölbýlishúsNorðurland/Siglufjörður-580
84.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
22.000.000 kr.
Fermetraverð
259.740 kr./m2
Fasteignamat
20.750.000 kr.
Brunabótamat
39.050.000 kr.
AE
Arndís Erla Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
www.fasteignamidlun.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2130565
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ágætt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
22,01
Upphitun
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamiðlun kynnir eignina Hvanneyrarbraut 62, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0565 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Hvanneyrarbraut 62 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0565, birt stærð 84.7 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.


Um er að ræða íbúð á miðhæð í fjölbýlishúsi sem samanstendur af 5 íbúðum, sameiginlegum stigagangi, sameiginlegu þvottahúsi og sérgeymslu.  Íbúðin samanstendur af eldhúsi, stofu, baðherbergi, stofu, anddyri, tveimur svefnherbergjum, sameiginlegu þvottahúsi á efstu hæð og geymslu/auka herbergi á neðstu hæð. Stór geymsla/svefnherbergi er á fyrstu hæð með ágætis glugga plássi. Búið er að endurnýja baðherbergi íbúðarinnar, hurðar ofna og gólfefni. 

Framkvæmdir: 
2013-2015: 
- Parket endurnýjað
- Ofnar endurnýjaðir 
- Innihurðar endurnýjaðar
- Eldavél endurnýjuð 
- Rafmagnstenglum fjölgað í eldhúsi og gangi. 
2020
- Múrpípa brotin burt, löguð og klædd. 
- Þakkantur endurnýjaður. 
- Frárennsli endurnýjað frá húsi út í brunn. 
- Baðherbergi endurnýjað með flísum á gólfi, fibo trezbo plötum á hluta af vegg og innréttingar og tæki frá Tengi. 

Nánari lýsing: 
Anddyri: er með ágætis fatahengi og flísum á gólfi. 
Eldhús: er með rúmgóðri innréttingu, viðarborðplötu, vask, eldavél og háfi. Frábært útsýni er úr eldhúsi. 
Stofa: er rúmgóð með parket á gólfi og góðu gluggaplássi. 
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og fibo- tresbo plötum á hluta af veggjum. Einnig eru fibo tresbo plötur í walk in sturtu með nýlegum blöndunartækjum og gleri. Hvít Ikea innrétting með vask og speglaskáp. 
Svefnherbergi: eru tvö mjög rúmgóð með parket á gólfi. 
Geymsla/svefnherbergi: er 18,1 m2 með steyptu gólfi og hillum. Gluggar eru með opnanlegu fagi. 
Sameign: samanstendur af þvottarými, þurklofti og geymslurými á efstu hæð, stigagangi, hitakompu og hjóla/vagnageymslu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/05/20177.450.000 kr.10.000.000 kr.84.7 m2118.063 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 93
Skoða eignina Suðurgata 93
Suðurgata 93
300 Akranes
153.9 m2
Fjölbýlishús
523
585 þ.kr./m2
90.000.000 kr.
Skoða eignina Merkigerði 21
Bílskúr
Skoða eignina Merkigerði 21
Merkigerði 21
300 Akranes
151.1 m2
Fjölbýlishús
413
516 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsflöt 4
Bílastæði
Skoða eignina Holtsflöt 4
Holtsflöt 4
300 Akranes
110.5 m2
Fjölbýlishús
312
535 þ.kr./m2
59.100.000 kr.
Skoða eignina Vesturberg 69
Bílskúr
Skoða eignina Vesturberg 69
Vesturberg 69
111 Reykjavík
226.5 m2
Fjölbýlishús
716
Fasteignamat 117.950.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin