Fasteignaleitin
Skráð 5. ágúst 2026

Bergþórugata 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
84.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.900.000 kr.
Fermetraverð
1.055.819 kr./m2
Brunabótamat
49.400.000 kr.
Byggt 1988
Svalir
Fasteignanúmer
20081281
Húsgerð
Fjölbýlishús

Borg fasteignasala kynnir fallega og bjarta 84,2 fm íbúð á kyrrlátum stað í miðborginni. 

Hér nýtur sín vel aukin lofthæð, stórbrotið útsýni og skjólsælar suðursvalir.  Eigninni fylgir aðgangur að bílastæði á upphituðu plani á baklóð sem skapar mikil þægindi í miðbænum. Húsið er í góðu ástandi og hefur fengið markvisst viðhald á síðustu misserum.

Nánari lýsing eignar:
Íbúðarhlutinn:

Forstofa/hol: Rúmgott með góðum fataskápum.
Eldhús: Innréttingar eru hvítar og í viðarlit. Flísar eru á veggjum milli skápa og blástursofn er nýlegur. Góður borðkrókur er við stóran glugga og frábært útsýni þar að Esjunni, Akrafjalli og víðar. 
Stofa: Samliggjandi eldhúsi. Stofan er stór og björt með fallegum virkum arni sem setur mikinn svip á rýmið. Þaðan er sama glæsilega útsýni yfir sundin og fjallahringinn.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskápum og útgengi á skjólgóðar svalir sem snúa mót suðri.
Barnaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf og með tvo glugga sem gefur góða birtu. Þar er flísalögð sturta með sturtugleri, baðkar og snyrtileg innrétting. Einnig er þar tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Kjallari og sameign:
Sérgeymsla: Í kjallara er 7,4 fm sérgeymsla búin hillum.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottaherbergi er með lakkað gólf, glugga og sértengla fyrir hverja íbúð.
Hjólageymsla og geymslur: Sameiginleg hjólageymsla er með þægilegu útgengi beint út á baklóð. Auk þess er önnur sameiginleg geymsla í húsinu.
Lóð og bílastæði: Á baklóð hússins er malbikað bílaplan með snjóbræðslu og sex bílastæðum sem eru í sameign allra sex íbúðanna. Einnig er bílastæði fyrir framan húsið í sameign íbúa hússins.

Bygging og ástand hússins:
Húsið er steypt og var það byggt 1988. Það hefur fengið mikið viðhald síðastliðin ár og eftirfarandi framkvæmdasaga liggur fyrir:
Framkvæmdir 2025:
- Skipt var um alla glugga og svalahurðir. Settir voru vandaðir ál/trégluggar þar sem gluggar eru úr timbri en listar úr áli.  Glerið er hljóðeinangrandi.
Þak var yfirfarið og skipt var um eftirfarandi: Nýtt bárujárn, nýr þakpappi, nýtt kjöljárn, nýjar flasningar og nýjar þaktúður. Aðrir hlutar þaksins voru metnir í lagi af eftirlitsaðila.
- Nýjar þakrennur og ný niðurfallsrör.
- Nýir niðurfallsbrunnar  í svalagólf.
- Unnið var að múr- og sprunguviðgerðum á ytra byrði hússins.
Yfirstandandi framkvæmdir (2026):
- Verið er að mála húsið að utan auk þess sem verið er að setja upp nýjan þakkant. 

Aðrar mikilvægar upplýsingar fyrir kaupanda:
Hússjóður og framkvæmdir: Staða hússjóðs er nú um 3 milljónum króna (eftir endurgreiðslu VSK). Þessi upphæð mun ganga upp í þær yfirstandandi framkvæmdir (málun og þakkant) sem verið er að ljúka við.

Hverfið:  
Örstutt er í fjölbreytta verslun, þjónustu, menningu og skóla. 

Allar upplýsingar veita  Börkur Hrafnsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 892-4944. tölvupóstur borkur@fastborg.is og Ingimar Ingimarsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur ingimar@fastborg.is.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sigtún 39
Skoða eignina Sigtún 39
Sigtún 39
105 Reykjavík
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
782 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 405
Hleðslustöð
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Laugaborg 405
Laugaborg 405
105 Reykjavík
105.3 m2
Fjölbýlishús
312
1034 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 405
Hleðslustöð
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
Laugaborg 405.jpg
Skoða eignina Laugaborg 405
Laugaborg 405
105 Reykjavík
105.3 m2
Fjölbýlishús
312
1034 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 319
Hleðslustöð
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Laugaborg 319
Laugaborg 319
105 Reykjavík
91.4 m2
Fjölbýlishús
312
1018 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin