Fasteignaleitin
Skráð 21. mars 2026

Ciudad Quesada Spánn

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
78 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
37.300.000 kr.
Fermetraverð
478.205 kr./m2
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Fasteignanúmer
9996840
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Fasteignasalan TORG í samstarfi við NovusHabitat kynnir vönduð nýbyggingaverkefni á eftirsóttum svæðum á Spáni og Tenerife.
Við veitum persónulega ráðgjöf og fylgjum kaupendum í gegnum allt ferlið, frá fyrstu skoðun til afhendingar, í samstarfi við trausta sérfræðinga á Spáni.

Ciudad Quesada á Costa Blanca
Verð frá 37,3 m.kr. – fullbúnar íbúðir með sameiginlegri sundlaug.
Verkefnið er staðsett í Ciudad Quesada á Costa Blanca, vinsælu og vaxandi svæði sem hefur verið eftirsótt meðal erlendra kaupenda.
Svæðið einkennist af góðu loftslagi með yfir 300 sólardaga á ári og hentar vel bæði til frístundanota og til fastrar búsetu.
Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, þar á meðal matvöruverslanir, veitingastaðir, skólar og heilbrigðisþjónusta. Aðeins um 10 mínútna akstur er í strendur við Guardamar og La Mata. Svæðið býður upp á fjölbreytta útivist, þar á meðal golfvelli, íþróttasvæði, tennis- og padelvelli og göngu- og hjólaleiðir í La Mata náttúrugarðinum. Alicante flugvöllur er í um 35–40 mínútna akstursfjarlægð.
Íbúðakjarninn samanstendur af 88 íbúðum sem raðast í kringum sameiginlega sundlaug og græn svæði. Allar íbúðir eru með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og opnu, nútímalegu skipulagi þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda eitt samræmt rými.
Í boði eru annars vegar íbúðir á jarðhæð með rúmgóðri verönd og einkagarði og hins vegar íbúðir á efri hæð með sér þakverönd og útsýni.
Stærðir íbúða eru frá 73 m² til 79 m² og verð frá 302.000 € til 328.000 €.
Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með loftkælingu fyrir heitt og kalt loft, eldhústækjum, fullbúnum baðherbergjum með gólfhita, rafmagnsgardínum og innbyggðum fataskápum. Um er að ræða tilbúnar eignir til notkunar eða útleigu við afhendingu.

Fasteignasalan TORG og NovusHabitat veita aðstoð við alla þætti kaupferlisins, þar á meðal tengingu við banka, lögfræðinga og þjónustuaðila á Spáni, og tryggja þannig einfalt og öruggt ferli fyrir kaupendur. Athygli er vakin á því að verð í íslenskum krónum er áætlað viðmið miðað við gengi á hverjum tíma. Endanleg viðskipti fara fram í evrum (EUR) og getur gengi haft áhrif á heildarkostnað.
Ferlið er einfalt; þú segir okkur hverju þú leitar að og við aðstoðum þig við að finna rétta eign. Við skipuleggjum skoðunarferðir og tökum að hluta þátt í kostnaði vegna þeirra, verði af kaupum.
Við kaup á nýbyggingum á Spáni leggst almennt 10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) ofan á kaupverð. Auk þess má gera ráð fyrir um 3% viðbótarkostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra gjalda, þannig að heildarkostnaður getur numið um 13% ofan á kaupverð.
Við veitum aðstoð við allt kaupferlið á Spáni sem felur meðal annars í sér útgáfu NIE-númers, opnun bankareiknings og aðkomu lögfræðings. Algengt er að fjármögnun fáist hjá spænskum bönkum að hluta til, oft á bilinu 50–70% af kaupverði, háð mati á greiðslugetu.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hrafnaborg 3
Opið hús:16. apríl kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hrafnaborg 3
Hrafnaborg 3
190 Vogar
111.7 m2
Fjölbýlishús
413
653 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 43a (402)
Opið hús:19. apríl kl 13:00-13:30
CD778C54-C056-418D-97F7-32DF0C629A81.JPG
Mýrargata 43a (402)
101 Reykjavík
43.4 m2
Fjölbýlishús
211
1267 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Skoða eignina Reykás 26
Bílskúr
Opið hús:13. apríl kl 16:00-16:30
Skoða eignina Reykás 26
Reykás 26
110 Reykjavík
190.3 m2
Fjölbýlishús
613
578 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 14
Bílskúr
Skoða eignina Kristnibraut 14
Kristnibraut 14
113 Reykjavík
180.6 m2
Fjölbýlishús
513
708 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin