LANDMARK fasteignamiðlun, Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignaslai s: 896-6160 / erla@landmark.is kynna:4 herbergja 129.3 m2 einbýlishús við í Grettisgötu 49.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:Íbúð er 129,3 m2 merkt 01-01, samtals 129.3 m2 að stærð.
Nánari upplýsingar um eign:Fallegt og sjarmerandi einbýlishús á eignarlóð við Grettisgötu í hjarta miðborgar Reykjavíkur, byggt árið 1920. Húsið ber með sér klassískan karakter og sögu sem einkennir eldri byggð miðborgarinnar. Samkvæmt fasteignaskrá er húsið skráð 129,3 m² að stærð, en raunverulegt gólfpláss er líklega meira þar sem rými undir súð nýtast vel. Skipulag hússins býður upp á notaleg og björt rými með miklum möguleikum. Húsinu hefur verið vel viðhaldið og nýlega endurnýjað með áherslu á einangrun, lagnir og nútímalegt baðherbergi, sem sameinar sjarma eldri byggingar við þægindi nútímans. Staðsetning eignarinnar er einstaklega eftirsóknarverð, í göngufæri við helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og menningarlíf miðborgarinnar.
Miðhæð:Forstofa flísalögð (málaðar flísar)
Stofa/borðstofa í opnu rými með krossviði á gólfum tilbúið fyrir parketlögn
Eldhús parketlagt með borðkrók og snyrtilegri hvítri innréttingu
Baðherbergi flísalagt baðherbergi með sturtu
Ris:Svefnherbergi stórt parketlagt herbergi (upphaflega tvö rými sameinuð), útgengt á rúmgóðar svalir og lítið salerni með flísum á gólfi
Kjallari:Herbergi tvö rúmgóð herbergi skv. eigendum er búið að einangra gólf í öðru herberginu
þvottahús með steingólfi og innréttingu, útgengi í garð
Geymsla góð geymsla er í kjallara þar eru inntök fyrir húsið og köld geymsla er undir forstofu
Lóðin garðurinn er afgirtur - tvö bílastæði eru við húsið þar af eitt sem rúmar mögulega tvo bíla
Eftirfarandi endurbætur hafa verið gerðar á húsinu skv. upplýsingum frá eigendum: Rafmagn: Rafmagn í húsinu endurnýjað að miklu leyti. Skv. upplýsingum frá fyrri eiganda voru raflagnir í eldhúsi endurnýjaðar sem núverandi eigendur geta ekki staðfest.
Lagnir: Skipt um klóak lögn í kjallara og í garði. Nýjar vatnslagnir og frárennslislagnir á nokkrum stöðum.
Einangrun: Loftaklæðning endurnýjuð og loft einangruð í flestum rýmum, einangraðir veggir og gólf að hluta í kjallara.
Upphitun: Ofnalagnir endurnýjaðar og nýir ofnar að hluta.
Gluggar: Gluggar í kjallara hafa verið endurnýjaðir með tilliti til flóttaleiða.
Baðherbergi: Nýlega flísalagt baðherbergi og nýtt salerni (ca. 3 ára).
Útihús: Skúr byggður að hámarksstærð sem heimilt er án byggingarleyfis, einangraður, með rafmagni, reistur í sama stíl og húsið.
Borðstofa: Mögulegt er að flytja eldhúsið í borðstofu (búið að leggja rafmagn) og breyta núverandi eldhúsi í herbergi.
Þar sem um er að ræða hús sem er yfir 100 ára gamalt er kaupendum ráðlagt að láta ástandsskoða eignina af viðurkenndum fagaðila.
Nánari upplýsingar um eign veitir:Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s. 896-6160 eða erla@landmark.is
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat