Laust strax til afhendingar.Skeifan kynnir til leigu/sölu:
Skrifstofuhúsnæði sem innréttað hefur verið sem herbergi á góðum stað við Vatnagarða.Um er að ræða alla efri hæð hússins sem er 1.287,2 fm sem eru tvö fastanúmer 201-5940 sem er alls 639,7 fm. og 201-5943 sem er alls 647,5 fm.Húsnæðið hefur verið mikið endurbætt. Staðsetning er rétt við Sundahöfn og næg bílastæði eru við húsið.
Sérinngangur beint frá götu.33 góð íbúðarherbergi, eldhús, þrjú stór baðherbergi, níu sturtur og 10 geymslur. Að auki eru rými fyrir sameiginlegar stofur.
Stærð herbergja er 12 til 16 fm.Húsnæðið hefur mikið verið endurbætt innandyra.
Sex flóttaleiðir og er brunahönnun mjög góð.
Mannvit hannaði brunavarnir húsnæðisins.
Húsnæðið er hannað samkvæmt brunavarnakröfum.
Öryggiskerfi og brunavarnarkerfi er frá og vaktað af Securitas.
Viðurkenndar brunahurðir að öllum herbergjunum.
Búið að setja upp lyftu í húsnæðið.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Góð bílastæði eru við húsið.
Nánari upplýsingar veitir HALLDÓR / Sími: 618-9999 / HALLDÓR@SKEIFAN.ISEignin er mögulega ekki í samræmi við samþykktar teikningar
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 kr fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skeifan fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.