Miklaborg kynnir: Álfaskeið 94, 220 Hafnarfirði - 3ja herbergja íbúð á efstu hæð + bílskúr, samtals 109,4 fm.
Íbúðin er laus og því afhending við kaupsamning. Parket og flísar á gólfum Búið að endurnýja eldhús og baðherbergi ásamt gler og gluggum víða sem og leggja nýtt hitakerfi innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð þar sem hver og einn er með sína vél. Niðri er sameiginleg vagna- og hjólageymsla ásamt sér geymslu.
Opið hús miðvikudaginn 25. mars kl. 17:15-18:00, allir áhugasamir velkomnir.
Nánari lýsing: Sameiginlegur inngangur. Stigahús teppalagt. Sérinngangur af svalagangi þegar upp er komið. Forstofa með fatahengi ásamt lítilli geymslu/búr. Stofa, borðstofa og eldhús saman í opnu rými. Falleg hvít eldhúsinnréting með góðum tækjum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergið er mað walk-inn sturtu ásamt innréttingu. Í heildina góð íbúð með góðu innra skipulagi í rótgrónu hverfi. Stutt í margvíslega þjónustu innan Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205. Velkomið að panta tíma fyrir skoðun.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 21/03/2020 | 38.250.000 kr. | 37.550.000 kr. | 109.4 m2 | 343.235 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
104 | 95,6 | 85,9 | ||
102 | 128,4 | 122,9 | ||
104 | 93,9 | 84,9 | ||
104 | 124 | 104,9 | ||
104 | 95,6 | 84,9 | ||
310 | 106,8 | 89 |