Hraunhamar fasteignasala kynnir: Rúmgóð 4 herbergja endaíbúð á 3. hæð (efstu) á þessum vinsæla stað við Þrastarás 18 í Áslandshverfinu í Hafnarfirði. Fallegt útsýni. Frábær staðsetning í nálægð við fallega náttúru, skóli og leikskóli í göngufæri. Eignin er laus strax við kaupsamning.
Eignin er skráð 111,5 skv. HMS en þar af er 7,2 fm sérgeymsla í sameign. Nánari lýsing eignar:
Sérinnangur af svölum. Flísalögð
forstofa með fataskáp.
Inn af forstofu er
þvottaherbergi, skolvaskur. Flísar á gólfi.
Hol. Rúmgott bjart alrými. Frá stofu er útgengt á
svalir í suðurátt. Fallegt útsýni.
Eldhús með góðu skápaplássi, bakaraofn í vinnuhæð. Borðkrókur, fallegt útsýni frá eldhúsi.
Rúmgott
hjónaherbergi með fataskápum.
Tvö svefnherbergi með fataskáp.
Flísalagt
baðherbergi með innréttingu með handlaug, salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Sérgeymsla í sameign.
Gólefni eru parket og flísar.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Rúmgóð eign með frábæru útsýni sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veita:Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða
glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.