Fasteignaleitin
Skráð 21. apríl 2026

Bragagata 33

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
126.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
868.088 kr./m2
Fasteignamat
102.200.000 kr.
Brunabótamat
63.300.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2007583
Landnúmer
102245
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Yfirfarið og hreinsað
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Málað fyrir u.þ.b. 5 árum síðan
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Nýtt á skrá! Sjarmerandi einbýlishús við Bragagötu 33 í Reykjavík.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir  til sölu virkilega fallegt og vel staðsett 126,6 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum ásamt kjallara og risi. Rishæð er ekki inn í fermetratölu eignarinnar. Sér bílastæði er staðsett við afgirtan bakgarð. Eignin er staðsett á eftirsóttum stað við Bragagötu í Reykjavík. Sérinngangur er í kjallara sem er útbúinn sem stúdíó íbúð með möguleika á útleigu.

Að sögn eiganda hefur eignin verið nokkuð endurnýjuð á sl. árum, m.a. eldhúsinnrétting og tæki, húsið múrviðgert og málað árið 2025 ásamt því að þak var málað fyrir u.þ.b. 5 árum síðan Auk þess er búið að endurnýja rafmagnstöflur og ofnalagnir. Nýleg sérsmíðuð svalahurð er út frá baðherbergi. Stæði á baklóð hefur verið hellulagt. Það verður búið að skipta um þau gler í gluggum sem er komið á tíma fyrir afhendingu hússins.

Lýsing eignar:
Aðalhæð:

Forstofa: Með flísum og fatahengi.
Stofa: Með fallegum upprunlegum viðarfjölum og glugga til suðurs. Stofa er opin að hluta við eldhús/borðstofu.
Eldhús/borðstofa: Með fallegum viðarfjölum á gólfi og endurnýjaðri eldhúsinnréttingu. Nýleg Gorenje eldavél með keramik helluborði. Gott pláss fyrir borðstofuborð og gluggi til norðurs. Útgengi er í bakgarð frá eldhúsi/borðstofu.
Bakgarður: Er afgirtur með torfi og hellum. Gengið er í bakgarð frá eldhúsi/borðstofu. Hellulagt bílastæði liggur við bakgarð. Auk þess er gengið í geymslu úr bakgarði.
Geymsla: Innangengt úr bakgarði. Vatn og rafmagn í geymslu.

Efri hæð: Gengið upp steyptan stiga frá forstofu.
Svefnherbergi I: Með máluðu gólfi, glugga til norðurs og innbyggðum skápum.
Svefnherbergi II: Er rúmgott með máluðu á gólfi og glugga til suðurs. Gengið upp á risloft frá herbergi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og flísalagðri sturtu. Handklæðaofn, hvít innrétting við vask og útgengi á svalir til norðvesturs með nýlegri sérsmíðaðri svalahurð.

Risloft: Gengið upp í frá Svefnherbergi II. Steypt gólf og tveir þakgluggar. Grunnflötur rislofts er ekki skráður í fasteignaskrá.

Kjallari: Með sérinngang frá Bragagötu. Ekki er full/lögleg lofthæð í kjallara.
Forstofa: Með máluðu gólfi.
Eldhús: Með máluðu gólfi og glugga til suðurs.Vaskur og lítill kæliskápur. Sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
Baðherbergi: Með upphengdu salerni og vask.
Svefnherbergi: Með máluðu gólfi og gluggum til norðurs.

Lóðin er fullfrágengin og með afgirtri viðarverönd auk tyrfðrar flatar.  Sér bílastæði er á lóð austan við húsið.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum stað í miðborginni þaðan sem stutt er í verlsanir, veitingahús og aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/03/201854.500.000 kr.60.500.000 kr.126.6 m2477.883 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hulduholt 2a íbúð 103
Bílastæði
Hulduholt 2a íbúð 103
603 Akureyri
140.8 m2
Fjölbýlishús
423
850 þ.kr./m2
119.680.000 kr.
Skoða eignina Jakasel 25
Skoða eignina Jakasel 25
Jakasel 25
109 Reykjavík
255.9 m2
Einbýlishús
936
Fasteignamat 139.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Norðurtún 43
Bílskúr
Skoða eignina Norðurtún 43
Norðurtún 43
700 Egilsstaðir
192.4 m2
Einbýlishús
614
533 þ.kr./m2
102.500.000 kr.
Skoða eignina Bæjarhraun 6
Skoða eignina Bæjarhraun 6
Bæjarhraun 6
220 Hafnarfjörður
184.3 m2
Atvinnuhúsn.
1
596 þ.kr./m2
109.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin