Skráð 3. mars 2026

Smiðjuvellir 174

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Suðurnes/Reykjanesbær-230
42.9 m2
Verð
24.900.000 kr.
Fermetraverð
580.420 kr./m2
Fasteignamat
1.030.000 kr.
Mynd af Hákon Ólafur Hákonarson
Hákon Ólafur Hákonarson
Garður
Fasteignanúmer
2535758
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
13
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Matsstig
1 - Samþykkt
PRODOMO fasteignarsala kynnir í einkasölu virkilega snyrtilegt geymslubil á frábærum stað í Reykjanesbæ að Smiðjuvöllum 174
Um er að ræða 63 fm þar af er milliloft um 20 fm.


Virkilega snyrtilegt bil með nýju epoxy á gólfi, rafmagnsopnun með 3ja fasa mótor, skolvask í innréttingu, blöndunnartæki fyrir heitt og kalt vatn við hurð ásamt 3ja fasa tengil og allt klárt fyrir háþrýstidælu á vegg, og stiga inn í enda upp milliloft.
Milliloft hefur parket á gólfi, salernisaðstöðu þar sem er vegghengt salerni og vaskur í innréttingu, veggur með glugga klæddur með hljóðvistar þiljum og LED lýsing í lofti
Límtrésbitar hafa verið klæddir af með hvítu áli að mestu, lýsing mjög góð og búið að bæta við rafmagnstenglum.
Milliloft er yfir sirka helming gólfflatar og er hæð frá gólfi uppí milliloft 260 cm, hæð á millilofti er 270 cm og niður í 180 cm og er milliloft vel manngengt.

*** Epoxy á gólfi neðri hæðar og parket uppi
*** Rafmagnopnun með 3ja fasa mótor
*** Salerni og vaskur í innréttingu á millilofti
*** Vaskur í innréttingu niðri
*** 3ja fasa tenglar
*** Góð lýsing og búið að bæta við rafmagnstenglum
*** Afgirt svæði og rafmagnshlið væntanlegt
*** Öryggismyndavélakerfi

Um er að ræða glæsilegt bil þar sem mikið hefur verið gert og vandað til verka.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Hákon Ó Hákonarson Löggiltur fasteignasali  í síma   899-1298 / 420-4030 eða hakon@prodomo.is
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 eða lilja@prodomo.is



Nánari lýsing frá byggingaraðila:
 Húsið mun vera geymsluhúsnæði. Um er að ræða 88 stk geymslubil byggð úr límtré og yleiningum frá Límtré Vírnet. Fjórir matshlutar eru á lóðinni, hver matshluti er með mis mörgum geymslubilum. 14 bil eru í þessum matshluta.
Stærð hvers geymslubils er um 43 fm í þessum matshluta Húsið er reist úr límtré sem reist er á staðsteyptar undirstöður. Húsið er klætt að utan með fjöldaframleiddum yleiningum sem koma með innbrenndum lit. Litir eru almennt dökkgráir.
Flassningar verða í einkennandi litum fyrir hvern matshluta.
Húsin eru reist á staðsteyptum sökkli. Samanlögð heildar lóðarstærð er um 9.894 fm. Stofnað hefur verið húsfélag sem sér um rekstur á sameiginlegri lóð og öryggiskerfi.

Frágangur utanhús:

Burðarvirki:Sökklar og botnplata: Járnbent steinsteypa. Útveggir: Límtrésburðarvirki þar sem það á við. Yleiningar með steinullarkjarna. ST 105. Dökk gráar að utan og hvítar að innan
Þak/ Þakvirki: Límtrésburðarvirki þar sem það á við. Yleiningar með steinullarkjarna. ST 175, trapizuformuð þakklæðning. Dökk gráar að utan og hvítar að innan.
Útveggir: Yleiningar með steinullarkjarna. Dökk gráar að utan og hvítar að innan. Allar áfellur eru með innbrenndum lit. Hver matshluti verður aðgreindur með sérstökum kenni-lit.
Raflagnir: Lýsing utanhúss er fullfrágengin LED lýsing. Útilýsingu er stýrt með sólúri í aðaltöflu.
Lagnir: Þakniðurföll og drenlagnir i lóð. Skólpbrunnar verði við öll hús þannig hægt sé að rekja mengun í frárennsli á einstaka matshluta. Öll inntök / mælagrindur fyrir hvern matshluta eru í sameiginlegum inntaksrýmum. Inntaksrýmin eru aðskilin fyrir aðaltöflu annarsvegar og heitt og kalt neysluvatn, hinsvegar.
Gluggar og útihurðir:  Gluggar og útihurðir eru úr áli. Allt gler er K-gler
Iðnaðarhurð: 3,1m x 3,0m með mótor. Litur dökk grár.

Frágangur innanhúss:

Gólf: Gólfplata hússins er einangruð, járnbent og staðsteypt. Gólf hússins eru slípuð steinsteypa
Veggir: Veggir innanhúss eru steinullarfylltar yleiningar, hvítar að lit.
Raflagnir: Vinnulýsing og rofi í hverju geymslubili, mótor fyrir loftræstingu mun virkjast með ljósarofa. Tvöfaldur tengill í töflu.


Lagnir: Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru þau upphituð með hitaveituofnum Niðurföll í gólfi við innkeyrsluhurðir verði hefðbundin en með möguleika að koma fyrir olíugildru í þau ef starfsemi hússins breytist á einhverjum tímapunkti. Hitaveita verður sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi. Varmaskiptir er við inntak heita neysluvatnsins. Lögnum verður skilað tilbúnum fyrir salernisaðstöðu tilbúnum til tengingar

Frágangur lóðar:

Lóð: Bílastæði eru fullfrágengin með malbikslögn. Steinsteypt sorptunnugerði fyrir tvo framhlaðna gáma verður komið upp innan lóðar. Veggir og gólf utan um gáma verði steinsteypt.Niðurföll með sandfangi verði bæði við sorptunnugerði sem og á akstursleiðum við geymslubil.
Stofnað hefur verið húsfélag sem sér um rekstur á sameiginlegri lóð og öryggiskerfi. Lóð er afgirt með galvaniseraðri öryggisgirðingu.
Komið verður fyrir fjarstýrðu hliði sem hindrar aðkomu óviðkomandi inná lóð.
3 stk læsanleg göngu-hlið á öryggisgirðingu. Sett hefur verið upp myndavélakerfi sem rekið er af húsfélagi í sameign allra eignahluta á svæðinu 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Hákon Ó Hákonarson Löggiltur fasteignasali  í síma   899-1298 / 420-4030 eða hakon@prodomo.is
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 eða lilja@prodomo.is




Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/05/202512.350.000 kr.20.000.000 kr.42.9 m2466.200 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smiðjuvellir 134
Smiðjuvellir 134
230 Reykjanesbær
43.9 m2
Atvinnuhúsn.
544 þ.kr./m2
23.900.000 kr.
Skoða eignina Smiðjuvellir 134
Smiðjuvellir 134
230 Reykjanesbær
43.9 m2
Atvinnuhúsn.
558 þ.kr./m2
24.500.000 kr.
Skoða eignina Smiðjuvellir 134
Smiðjuvellir 134
230 Reykjanesbær
43.9 m2
Atvinnuhúsn.
558 þ.kr./m2
24.500.000 kr.
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Skoða eignina Njarðarbraut 5
Njarðarbraut 5
260 Reykjanesbær
56.6 m2
Atvinnuhúsn.
1
440 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin