Fasteignaleitin
Skráð 4. sept. 2026

Litla Þúfa 1B Íbúðalóð 3 hektarar

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
30,540 m2
Verð
24.900.000 kr.
Fermetraverð
815 kr./m2
Fasteignamat
11.350.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Fasteignanúmer
2507677
Landnúmer
229274
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Kvöð / kvaðir
Ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag né byggingarleyfi. Hugmyndir um uppbyggingu og nýtingu þarf því að leggja fyrir sveitarfélagið og eru byggingarmagn, staðsetning og útfærsla háð viðeigandi skipulagsmeðferð og samþykki.
Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir Litlu Þúfu 1B í Kjósarhreppi – einstaklega fallega 30.540 m² eignarlóð með útsýni yfir Hvalfjörðinn og Meðalfellsvatn.
Lóðin er rúmlega þrír hektarar að stærð og stendur í fallegu og friðsælu sveitaumhverfi, með höfuðborgarsvæðið í þægilegri akstursfjarlægð. Áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja móta framtíðarheimili með góðu næði, víðsýni og rúmgóðu landi í kringum sig.
Lóðin er skráð sem íbúðarhúsalóð í fasteignaskrá en er á landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi.
Eignin gæti meðal annars höfðað til hestafólks, áhugafólks um skógrækt og þeirra sem sækjast eftir sveitalífi í fallegu umhverfi Kjósarinnar.
Fyrirhuguð nýting og mannvirkjagerð þurfa að samræmast skipulagi og þeim leyfum sem við eiga.   Hér má sjá link inná landeignaskrá

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfanginu elka@fstorg.is.


Uppbygging íbúðarhúss og tengdra bygginga er háð viðeigandi skipulagsmeðferð og samþykki sveitarfélagsins. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér byggingarmöguleika og skilmála hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Kjósarhrepps með hliðsjón af fyrirhugaðri nýtingu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brúarfljót 4
Skoða eignina Brúarfljót 4
Brúarfljót 4
270 Mosfellsbær
Jörð/Lóð
270.000.000 kr.
Skoða eignina Efri-Ártunga land
Efri-ártunga land
806 Selfoss
31.000 m2
Jörð/Lóð
Fasteignamat 1.210.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Eyjafell 25
Skoða eignina Eyjafell 25
Eyjafell 25
276 Mosfellsbær
59,9 m2
Sumarhús
413
750 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Brúarfljót 7 Bil O
Hleðslustöð
Bruarfljot_26.jpg
Brúarfljót 7 Bil O
270 Mosfellsbær
108 m2
Atvinnuhúsn.
1
545 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin