Fasteignaleitin
Skráð 12. jan. 2022

Brúarfljót 4

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
Verð
270.000.000 kr.
Fasteignamat
42.550.000 kr.
Mynd af Árni Helgason
Árni Helgason
Löggiltur Fasteignasali
Fasteignanúmer
2330942
Landnúmer
210646
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Kvöð / kvaðir
Sjá lóðarleigusamning
DOMUSNOVA FASTEIGNASALA KYNNIR Í EINKASÖLU BYGGINGARLÓÐ - SAMTALS 6.481,8 FM - 0,5 Í NÝTINGARHLUTFALL

Iðnaðar- og athafnalóð við Brúarfljót 4 á Tungumelum í Mosfellsbæ. Um er að ræða leigulóð í eigu Mosfellsbæjar. Við sölu hafa gatnagerðargjöld verið greidd.

Lóðin er iðnaðar- og athafnalóð við Brúarfljót 4 á Tungumelum í Mosfellsbæ. 
Innifalið í kaupverði eru gatnagerðagjöld sem eru að fullu greidd skv. samþykktu byggingarmagni, 3240,9fm, og er um leigulóð í eigu Mosfellsbæjar að ræða. Skv. gjaldskrá Mosfellsbæjar eru gatnagerðargjöld á iðnaðarlóð nú (feb.26)kr. 47.379/fm (janúar 2022) sem jafngildir 155.550.601kr. 
Góð staðsetning rétt við Vesturlandsveg, upp á melunum ofan við nýjar höfuðstöðvar Útilegumannsins í Mosfellsbæ.
Skv. skipulagi er gert ráð fyrir þjónustu- og verslunarstarfsemi, léttum mengunarlausum iðnaði, hátækni- og vísindafyrirtæki og hvers konar annarristarfsemi, sem stuðlar að fallegu yfirbragði svæðisins.
Lóðin er seld í núverandi ástandi. Göngustígar, kantsteinar og frágangur við lóðamörk verða ekki kláruð fyrr en uppbyggingu er lokið við viðkomandi götu.

Seljandi leggur ríka áherslu á það við kaupanda að hann gæti sérstakrar árverkni við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali kaupanda allar nauðsynlegan aðgang að fyrirlögðum gögnum til þess. Eignin selst í því ástandi sem hún er í við skoðun á tilboðsdegi og kaupandi hefur kynnt  sér gaumgæfilega og sættir sig við að öllu leyti.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Desjamýri 13
Skoða eignina Desjamýri 13
Desjamýri 13
270 Mosfellsbær
291.1 m2
Atvinnuhúsn.
395 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Sólbakki
Bílskúr
Skoða eignina Sólbakki
Sólbakki
270 Mosfellsbær
218.4 m2
Einbýlishús
534
Fasteignamat 135.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Langitangi 35C
Bílskúr
Skoða eignina Langitangi 35C
Langitangi 35C
270 Mosfellsbær
212.3 m2
Raðhús
624
612 þ.kr./m2
130.000.000 kr.
Skoða eignina Langitangi 35B
Bílskúr
Skoða eignina Langitangi 35B
Langitangi 35B
270 Mosfellsbær
212.3 m2
Raðhús
624
589 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin