Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallegt, vandað og vel staðsett 285,5 fermetra einbýlishús á pöllum þar með talið 58 fermetra innbyggður bílskúr, á fallegum útsýnisstað við Erluás Hafnarfirði.
Húsið er skemmtilega skipulagt kringum um 50 fermetra skjólgóðann inngarð í miðju hússins, sem veitir mikla birtu inn húsið og tengir húsið saman sjónrænt. Arkitekt hússins er Sigríður ólafsdóttir arkitekt hjá Gríma arkitektum.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með mjög mikilli lofthæð og gler þaki yfir. Fataskápar eru í forstofu og skífa á gólfi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og einstaklega bjartar með gólfsíðum gluggum til austurs, suðurs og vesturs. Úr stofu er útgengi á verönd/inngarð og einnig útgengi á framlóð á stóra viðarverönd sem er með lýsingu í gólfi og sjávarsýn. Arinn er í stofu og verulega aukin lofthæð er í stofu eða um 6 metrar í mæni.
Eldhús er bjart og rúmgott með gluggum til norðurs og gólfsíðum gluggum til suðurs og útgengi á verönd/inngarð. Stór innrétting, eyja og borðkrókur, granít á borðum í eldhúsi. Í innréttingu er gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp með klakavél, uppþvottavél og í eyju er helluborð með háfi.
Búr er innaf eldhúsi, með glugga og innréttingu, flísalagt gólf. Heita- og kaldavatnslagnir til staðar.
Austurálma hússins er innréttuð sem hjónasvíta.
Hjónaherbergi, rúmgott með gluggum á þrjár vegu og útgengi út á verönd/inngarð.
Herbergi 2, með gluggum til austurs, er notað sem fataherbergi í dag. Það er innréttað með fataslám, hillum og skúffueiningu. Innangengt frá því inn á baðherbergi og hjónaherbergi.
Baðherbergi, Glæsilegt og bjart baðherbergi og þvottaherbergi með gluggum til austurs sem var endurhannað og endurnýjað fyrir ári síðan. Sturta með sérsmíðuðu gleri, inbyggt WC, innrétting, handklæðaofn, flísalagt gólf og veggir með sandsteini.
Manngengt geymsluloft er yfir tveimur herbergjum sem býður uppá þann möguleika að klára að innrétta og breyta í herbergi/vinnuherbergi/hobbýherbergi, einnig væri hægt að stækka það enn frekar.
Baðherbergi 2, er staðsett inn af holi og var það endurhannað og endurnýjað fyrir ári síðan. Sérsmíðuðu sturta og gler, inbyggt WC, innréttingar, flísar á gólfi og veggjum, með glugga og loftstokk fyrir viftu.
Herbergi 3, er rúmgott, útgengi er út á svalir til vestur, þar nýtur mikils útsýnis.
Gengið uppá aðrar hæð hússins í turnstofu úr rúmgóðu holi með stálstiga og viðarþrepum, sem nú er notað sem leik krókur.
Turnstofa, einstakt rými með glugga í þrjár áttir og glæsilegu útsýni til norðurs, vestur og suðurs. Útsýnið fangar allt frá Brennisteinsfjöllum, Keili, Reykjanesi, Faxaflóa yfir á Snæfellsnes með sínum tignarlega Snæfellsjökli, Akranes og Akrafjall, Esjuna og auðvitað yfir Hafnarfjarðarhöfn og allt höfuðborgarsvæðið.
Herbergi 4, er á efri hæð, gengið er niður fjögur þrep úr turnstofu. Rúmgott með veltigluggum.
Gegnheilt vandað og fallegt suður-amerískt parket, fiskibeinamynstur, er á öllum gólfum hússins nema í forstofu, á baðherbergjum og í búri þar eru flísar. Mikil lofthæð er í stærstum hluta hússins. Gólfhiti er í öllu húsinu.
Húsið er byggt í “U” með einstaklega skjólgóðum inngarði á móti suðri, útgengt er í hann úr stofu, eldhús/holi og hjónaherbergi.
Um 200 fermetra verönd á þremur pöllum er með skjólveggjum, fallegum gróðurbeðum og fallegri lýsingu. Á efsta palli verandar, sem er með skjólveggjum á þrá vegu er heitur pottur, útisturta og rennandi heitt og kalt vatn. Garðurinn er fallega hannaður og hefur unnið til verðlauna. Geymsluhús er á palli og baklóð
Eignin er í mjög góðu ásigkomulagi að innan sem utan, innréttuð á vandaðan og smekklegan hátt. Vandaður harðviður er í gluggum og hurðum í öllu húsinu, utan þakglugga yfir anddyri sem er úr áli.
Baðherbergin eru nýuppgerð í hólf og gólf af fagmönnum. Mjög vandaður frágangur á rafmagnstöflu og hitakerfi.
Bílskúr, 58 fermetrar að stærð með gluggum og gönguhurð. Lakkað gólf með niðurföllum og rafmótor á bílskúrshurð, vinnuaðstaða. Úr bílskúr er innangengt í rúmgóðar geymslur með vönduðum og góðum skápum. Upphitað bílaplan og heimahleðslustöð við bílskúrshurð.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is