Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og jason@betristofan.is kynnir: Hlyngerði 8, 108 Reykjavík. Stórt einbýlishús að stærðinni 314 fermetrar sem skiptist í 4 svefnherbergi auk skrifstofu, 2 baðherbergi auk gestasnyrtingar, 3 stofur (stofu, borðstofu og arinstofu), eldhús, þvottahús, gufubað, bílskúr og geymslur. Neðri hæð hefur sérinngang og gæti hentað sem aukaíbúð, með fyrirvara um samþykki byggingaryfirvalda.
Einstakt og vandað einbýlishús á pöllum í Hlyngerði, teiknað af Vífli Magnússyni arkitekt árið 1974 og byggt 1976. Húsið hefur aðeins verið í eigu tveggja fjölskyldna og hefur verið mjög vel viðhaldið.
Húsið er dæmigert fyrir íslenska byggingarlist áttunda áratugarins en ber jafnframt sterk einkenni arkitektsins, sem nam í Mexíkó. Loft eru viðarklædd með sýnilegum burðarbitum, lofthæð er víða mikil og bogadregin dyraop eru í múrhúðuðum veggjum. Stórir gluggar gera húsið bjart. Í húsinu eru tvö listaverk sem eru hluti af byggingunni: glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörð í glugga stigagangsins og handrið eftir Jón Gunnar Árnason, höfund Sólfarsins.
Húsið er stórt og hentar vel fjölskyldu, með fjórum svefnherbergjum, skrifstofu sem nýta má sem fimmta svefnherbergið, arinstofu og stórri stofu undir háu súðarlofti. Það stendur á skjólsælli 784 m² verðlaunalóð þar sem tré og fjölærar plöntur ramma húsið inn og skapa skjól. Húsið stendur fyrir miðjum rólegum botnlanga þar sem aðeins eru 14 hús og umferð því lítil. Staðsetningin er góð, miðsvæðis í borginni og stutt í leikskóla, skóla, framhaldsskóla, verslanir og þjónustu.
Hlyngerði 8 er sjaldgæft tækifæri fyrir þá sem kunna að meta vandaða byggingarlist og listrænt handverk: heimili þar sem hús, listaverk og garður hafa fengið að þroskast saman í hálfa öld, á eftirsóttum stað í Reykjavík.
Forstofa með flísum á gólfi og sérhönnuðum fataskáp með kínverskan dreka að fyrirmynd. Loftljósin eru handblásin úr gleri á Ítalíu og flutt sérstaklega inn.
Hol / skáli með mikilli lofthæð. Á gólfi er vandað ullarteppi, lagt 2025, og loft er klætt panel með bitum. Í holinu er glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörð, og meðfram holinu og stiganum niður á neðri hæð er handrið eftir Jón Gunnar Árnason.
Gestasnyrting með marmara á gólfi og innréttingu. Handmálaður postulínsvaskur, fluttur inn frá Kína og skreyttur kínverskum myndum, ásamt gylltum blöndunartækjum.
Skrifstofa inn af holi með parketi og sérsmíðuðum bókahillum.
Eldhús með upprunalegri, sérsmíðaðri viðarinnréttingu sem þarfnast endurnyjunar.
Borðstofa með nýlegu parketi á gólfi, hlöðnum og viðarklæddum veggjum, nýjum gluggum og svalahurð (2026) og útgengi á suður svalir.
Svalir: Svalirnar eru mjög rúmgóðar, snúa í suður og eru einstaklega skjólgóðar. Flísalögn á svölum var frestað til vors (sjá viðhaldslýsingu).
Stofa fjórum þrepum neðar, með nýlegu parketi á gólfi, nýjum ofnum, nýjum suðurglugga og hárri lofthæð undir viðarklæddu súðarlofti með dökkum bitum.
Bílskúr innbyggður og rúmgóður.
Neðri hæð
Bjartur gangur með vandað ullarteppi á gólfi, lagt 2025.
Fjögur rúmgóð og björt svefnherbergi, eitt parketlagt með fataskáp og tvö með korki á gólfi.Baðherbergi á gangi er flísalagt með sturtu og glugga.
Hjónaherbergi er parketlagt, með upprunalegum sérsmíðuðum skápum og innangengu, flísalögðu baðherbergi með glugga, baðkari og sturtu. Hjónaherbergi er með útgengi á verönd til suðurs út í garðinn
Arinstofa í miðju húsinu undir stigaopi, með útgengi á verönd og út í garðinn. Arinstofan er með fallegum náttúruflísum.
Inngangur á neðri hæð með skápum og flísum, inn af anddyri á neðri hæð er geymsla. Þvottahús með innréttingum. Rúmgóð gufa sem virkar mjög vel.
Lóð og aðkoma
Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu (hita í plani). Skjólsæl 784 m² verðlaunalóð með trjám og fjölbreyttum gróðri, verönd og svalir til suðurs. Garðarnir eru afmarkaðir með nýju grindverki til suðurs, austurs og norðurs (2023) og nýtt ruslatunnuskýli er framan við húsið (2025).
Viðhaldslýsing: Viðgerðir og endurbætur utanhúss 2026
Þak: Nýtt þak 2026. Þéttilag þaks var endurnýjað. Allt þakjárn, áfellur, klæðning á veggjum sem ná upp fyrir þakflöt og annað var fjarlægt.
∙ Borðaklæðning yfirfarin, einungis þurfti að endurnýja nokkur borð við skorstein
∙ Nýtt þéttilag byggt upp sem; öndunardúkur, ásar og bárujárn. Nýjar áfellur, rennur og niðurfallsrör
∙ Loftunargrind sett á þakkanta og skorstein og þeir klæddir. Nýir hattar settir á alla kanta.
Gluggar: Skipt var um glugga í eldhúsi, glugga og svalahurð í borðstofu og suðurglugga í stofu.
∙ Settir voru nýir trégluggar með állistum frá Gluggagerðinni ehf.
Múrvinna: Framkvæmdar voru staðbundnar viðgerðir á útveggjum.
∙ Flísar á palli framan við aðalinngang voru endurnýjaðar, vatnsþétt undirlag var sett undir flísar
∙ Flísar á svölum borðstofu (suðurhlið) voru fjarlægðar og undirlag lagfært
∙ Sett var á það þéttiefni, en flísalögn var frestað til vors vegna veðurs
∙ Skyggni fyrir inngangi, yfirborð lagfært og borið á það þéttiefni
∙ Tröppur meðfram húsi lagfærðar
Fyrri endurbætur
∙ 2025: Nýtt ullarteppi og nýtt undirlag á stigagangi uppi og niðri. Ruslatunnur færðar fram fyrir hús og ruslatunnuskýli útbúið.
∙ 2023: Nýtt parket á borðstofu og stofu og nýir ofnar í stofu. Nýtt grindverk umhverfis garða til suðurs, austurs og norðurs og beð gerð meðfram því af garðyrkjumanni.
∙ 2000: Nýtt gler í alla glugga hússins.
1996: Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. Parket lagt á hjónaherbergi.
Listaverk og sérstaða hússins
Eitt helsta sérkenni hússins er stórbrotið stigahús þar sem tvö sérpöntuð listaverk eftir kunna íslenska listamenn mynda einstaka listræna heild.
Stigahandriðið er verk Jóns Gunnars Árnasonar, höfundar Sólfarsins, og var sérstaklega hannað fyrir húsið á árunum 1975–1976. Lífræn og samtengd form járnverksins bera með sér svip kínverskrar myndlistar og endurspegla einstakt formmál listamannsins.
Glæsilegur steindur gluggi eftir Leif Breiðfjörð prýðir stigahúsið, þar sem kínverskir drekar tákna árstíðirnar fjórar og hringrás náttúrunnar. Þegar dagsbirtan fellur í gegnum litríkt glerið skapast heillandi samspil ljóss, lita og skugga við dökkt járn handriðsins.
Saman mynda verkin einstaka brú milli íslenskrar samtímalistar og kínverskrar menningararfleifðar og gefa húsinu óviðjafnanlegan karakter. Hér eru listaverkin ekki einungis til skrauts heldur órjúfanlegur hluti af byggingarlist og sögu hússins.
Kínverska stefið
Kínversk áhrif setja svip sinn á húsið til viðbótar við listaverin. Fataskápurinn í forstofu er sérhannaður með kínverskan dreka að fyrirmynd. Svartar tvöfaldar hurðir eru rammaðar ljósum viði og handgerðum leirflísum, og hlykkjótt viðarmynstur liðast um vegginn umhverfis eins og drekabúkur. Á gestasnyrtingu er handmálaður postulínsvaskur frá Kína, og á rauðlakkaðri hurð er kínverst tákn fyrir „tvöfalda hamingju“, sem stendur fyrir hamingjusamt hjónaband og fjölskyldulíf.
Um arkitektinn
Vífill Magnússon arkitekt er fæddur 17. desember 1938. Hann flutti til Mexíkó á sjöunda áratugnum, lærði þar arkitektúr og bjó þar í um tólf ár. Hann kom heim 1973, fékk starfsleyfi sem arkitekt í nóvember sama ár og hefur síðan rekið eigin teiknistofu. Teikningar að Hlyngerði 8 eru frá júní 1974 og húsið er því meðal fyrstu verka hans eftir heimkomuna.
Áhrifin frá Mexíkó má sjá víða í verkum Vífils, og í Hlyngerði 8 birtast þau í bogadregnum opum, grófri múrhúð, steinlögðum gólfum og viðarloftum með sýnilegum bitum.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali, sími 7751515 - jason@betristofan.is