Fasteignaleitin
Skráð 20. mars 2026

Reyrengi 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
97.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
800.617 kr./m2
Fasteignamat
68.450.000 kr.
Brunabótamat
47.650.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2213722
Landnúmer
109261
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Þak
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnota reitur með afgirtri verönd í suðaustur
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG og Margét Rós lgf. kynna í sölu fallega og nokkuð endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi ásamt rúmgóðri afgirtri timburverönd og sérmerktu bílastæði í opnu bílskýli við Reyrengi 2, í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og samliggjandi stofu og borðstofu með útgengi á timburverönd. Sérgeymsla æu sameign og sérmerkt bílastæði í opnu bílskýli fylgir eigninni. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is  *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***

Um er að ræða bjarta og vel staðsetta eign á barnvænum stað í Grafarvogi. Göngufæri er í leik- og grunnskóla, ásamt Borgarholtsskóla, sem og alla helstu verslunar- og þjónustu við Spöngina í Grafarvogi. Frábærar gönguleiðir eru í næsta nágrenni ásamt margskonar íþróttastarfsemi og afþreyingu í Egilshöll. Þetta er eign sem vert er að skoða.

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 97,3 m², þar af er íbúð skráð 92,6 m² og sér geymsla 4,7 m² staðsett í sameign á jarðhæð. 

Nánari lýsing:
Forstofa er flísalög með skápum.
Hol/gangur er parketlagt og tengir saman önnur rými íbúðar.
Eldhús er með fallegri innréttingu með góðu skápaplássi. Helluborð, vaskur, blástursofn og gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og stæði fyrir ísskáp. 
Stofa/Borðstofa eru samliggjandi með parket á gólfi, útgengt á stóra afgirta timburverönd til suðausturs.
Svefnherbergi (I) er rúmgott og parketlagt hjónaherbergi með fataskápum.
Svefnherbergi (II) er rúmgott parketlagt barnaherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi (III) er inn af stofu, rúmgott og parketlagt með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu við vask, upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Tengi er fyrir þvottavél/þurrkara og gluggi með opnanlegu fagi.

í Sameign eru sér geymslur fyrir hverja íbúð, geymsla merkt 01-08 sem tilheyrir þessari eign er 4,7 m². Eins er rúmgóð vagna- og hjólageymsla ásamt sameiginlegri geymslu fyrir húsið.
Bílastæði er sérmerkt í opinni bílageymslu

Endurbætur á íbúð  og séreign að sögn seljanda:
- Eldhús uppgert að hluta, m.a. skipt um vask (2021)
- Nýr sólpallur/timburverönd byggð (2022) 
- Búið að setja upp rafhleðslustöð við stæði íbúðar í bílskýli. 

Endurbætur á húsi og sameign að sögn seljanda:
- Farið var í umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á ytra byrði hússins (2022-2024)
- Þakrennur og niðurföll endurnýjuð (2022) 
- Skipt um gler í stofuglugga (2022) 
- Skipt um gler í forstofu (2022) 

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMAT

Hér er um að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna eign með sérinngangi, góðu útisvæði og bílastæði í bílskýli á eftirsóttum stað í Grafarvogi. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/06/201833.300.000 kr.43.000.000 kr.97.3 m2441.932 kr.
06/05/200820.170.000 kr.26.900.000 kr.97.3 m2276.464 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 15
Bílastæði
Opið hús:21. mars kl 15:00-15:30
Urriðaholtsstræti 15
210 Garðabær
87.8 m2
Fjölbýlishús
211
1047 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 15
Bílastæði
Opið hús:21. mars kl 15:00-15:30
Urriðaholtsstræti 15
210 Garðabær
132.3 m2
Fjölbýlishús
322
1027 þ.kr./m2
135.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 15
Bílastæði
Opið hús:21. mars kl 15:00-15:30
Urriðaholtsstræti 15
210 Garðabær
86.8 m2
Fjölbýlishús
211
1001 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 15
Bílastæði
Opið hús:21. mars kl 15:00-15:30
Urriðaholtsstræti 15
210 Garðabær
131.4 m2
Fjölbýlishús
322
1004 þ.kr./m2
131.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin