Syðri Tunga - Tjörnesi. Til sölu jörðin Syðri Tunga í Tjörneshreppi, jörðin er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Húsavík. Jörðin er landmikil en landið liggur frá fjöru og upp á Tunguheiði ofan bæja og að landamerkjum við Fjöll í Kelduhverfi. Séreignaland Syðri Tungu afmarkast af heimatúnum, en úthagar eru óskiptir milli jarðanna Syðri Tungu, Tungugerðis og Steindals.
Sumarbústaðurinn sem á landinu stendur er byggður árið 1997 og þarfnast viðhalds. Bústaðurinn er með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með sturtu, litlu eldhúsi, borðkrók og stofu í einu rými ásamt lítilli forstofu með útgangi til suðurs.
Útihús: Samkvæmt FMR þá eru útihúsin sem fylgja jörðinni eftirfarandi: Geymsla byggð árið 1960 úr holsteini, stærð 52,6 fm., Fjárhús með áb.kjallara byggt árið 1950, 208,8 fm., Hlaða byggð 1950. Tveir geymslugámar eru við útihús. Bústaðurinn er kynntur með rafmagni. Húsin hafa hlotið lítið viðhald undanfarin ár, en er engu að síður hægt að nýta sem óupphitaðar útigeymslur og vinnuaðstöðu.
Ræktað land er skipt á milli bæjanna og tilheyra heimatún við bústaðinn og útihúsin, Syðri Tungu jörðinni. Eins og áður segir er jörðin landmikil en að mestu leiti í óskiptir sameign Syðri Tungu, Steindals og Tungugerðis.
Sumarhús á landinu þarfnast viðahlds en ljóst er að þak hefur lekið og eru ummerki um það á veggklæðningu í flestum rýmum. Vatnstjón varð á baðherbergi fyrir þó nokkru síðan og þá voru flísar fjarlægðar af hluta gólfs á baðherbergi, einnig er greinileg skemmd í gólfi framan við inngang á baðherbergi. Vatnsbretti við suma glugga eru illa farin. Vatn fyrir bæinn kemur úr uppsprettu sunnan við Tunguá sem er suður af bænum og þjónar lögnin bæði Syðri Tungu og Steindal. Lítill þrýstingur er á vatninu vegna lítils hæðarmunar
Kvöð / kvaðir
EIGNIN ER HLUTI AF DÁNARBÚI OG ER VÆNTANLEGUM KAUPENDUM BENT Á AÐ SKOÐA VEL MEÐ ÞAÐ Í HUGA.
EIGNAVER 460-6060.
Syðri Tunga - Tjörnesi. Til sölu jörðin Syðri Tunga í Tjörneshreppi, jörðin er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Húsavík. Jörðin er landmikil en landið liggur frá fjöru og upp á Tunguheiði ofan bæja og að landamerkjum við Fjöll í Kelduhverfi. Séreignaland Syðri Tungu afmarkast af heimatúnum, en úthagar eru óskiptir milli jarðanna Syðri Tungu, Tungugerðis og Steindals.
Sumarbústaðurinn sem á landinu stendur er byggður árið 1997 og þarfnast viðhalds. Bústaðurinn er með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með sturtu, litlu eldhúsi, borðkrók og stofu í einu rými ásamt lítilli forstofu með útgangi til suðurs.
Útihús: Samkvæmt FMR þá eru útihúsin sem fylgja jörðinni eftirfarandi: Geymsla byggð árið 1960 úr holsteini, stærð 52,6 fm., Fjárhús með áb.kjallara byggt árið 1950, 208,8 fm., Hlaða byggð 1950. Tveir geymslugámar eru við útihús. Bústaðurinn er kynntur með rafmagni. Húsin hafa hlotið lítið viðhald undanfarin ár, en er engu að síður hægt að nýta sem óupphitaðar útigeymslur og vinnuaðstöðu.
Ræktað land er skipt á milli bæjanna og tilheyra heimatún við bústaðinn og útihúsin, Syðri Tungu jörðinni. Eins og áður segir er jörðin landmikil en að mestu leiti í óskiptir sameign Syðri Tungu, Steindals og Tungugerðis.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.