Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir jörðina MERKIGARÐ Í SKAGAFIRÐI
Um er að ræða einstaklega fallega og fjölbreytta jörð, samtals um 200 hektara, þar af eru um 15 hektarar ræktað tún og um 60–70 hektarar skógi vaxið land.
Á jörðinni stendur 102,5 m² íbúðarhús, 61,2 m² vélageymsla og 80,6 m² hesthús í bragga með aðstöðu fyrir allt að átta hesta.
Jörðin liggur að Svartá á skjólsælum og sólríkum stað miðsvæðis í Skagafirði, með víðáttumiklu útsýni yfir sveitina og til fjalla.
Unnin hefur verið tillaga að deiliskipulagi fyrir 18 frístundalóðir innan jarðarinnar og býður eignin því upp á fjölbreytta möguleika til búsetu, skógræktar, hestamennsku, útivistar og mögulegrar framtíðaruppbyggingar.
NÁNARI LÝSING
Merkigarður er um 200 hektara jörð, fallega staðsett vestanvert í Eggjum, ásnum sem liggur frá norðri til suðurs á milli Héraðsvatna og Svartár.
Land jarðarinnar er fjölbreytt og hallar að mestu til vesturs í átt að Svartá. Meðfram ánni er grösugt bakkaland sem áður fyrr var mikilvægur hluti heyskaparlands jarðarinnar. Þar má jafnframt sjá gamlar reiðgötur sem bera sögu búsetu og samgangna á svæðinu vitni.
Austan Svartár hækkar landið og þar er miðhluti þess vel gróinn. Tún liggja út frá bæjarstæðinu, í suðausturhluta landsins er mýrlendi og flóar, en þess á milli eru holt, melar og falleg gróðursvæði. Fjölbreytt landslagið, skógurinn og lega jarðarinnar skapa skjólgott og fallegt umhverfi.
Um 15 hektarar jarðarinnar eru ræktuð tún og talið er að um 60–70 hektarar séu skógi vaxnir. Uppvaxið skóglendið skapar mikið skjól og fallegt umhverfi við bæjarstæðið.
SKÓGRÆKT
Hluti jarðarinnar fellur undir skógræktarsamning við Norðurlandsskóga. Frá árinu 2002 hafa verið gróðursettar um 150 þúsund plöntur á landinu og er skógurinn nú orðinn vel upp vaxinn.
Hafin er grisjun á hluta skógarins og hefur viðurinn meðal annars verið nýttur sem eldiviður, í kurl á göngustíga og sem undirburður fyrir hesta. Skógurinn býður upp á fjölbreytta framtíðarmöguleika eftir því sem hann vex og þroskast, auk þess sem hann eykur skjól, útivistargildi og náttúrufegurð jarðarinnar.
SAGA MERKIGARÐS
Merkigarður er gömul bújörð og ná heimildir um búsetu, ábúendur og eignarhald á jörðinni aldir aftur í tímann. Landið var nýtt til hefðbundins búskapar og var grösugt bakkaland meðfram Svartá áður fyrr meðal helsta heyskaparlands jarðarinnar. Gamlar reiðgötur sjást enn í landinu og minna á fyrri tíma þegar leiðir manna lágu um sveitina gangandi eða ríðandi. Saga jarðarinnar, fjölbreytt landnýting og lega hennar við Svartá gefa Merkigarði sérstakan karakter og sterka tengingu við búsetu- og landbúnaðarsögu Skagafjarðar.
ÍBÚÐARHÚS
Íbúðarhúsið er 102,5 m² og við það er góð timburverönd með heitum potti.
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús, forstofa og búr/geymsla. Húsið hefur verið endurnýjað að hluta, meðal annars eldhúsinnrétting og gluggar.
Hitaveita kemur frá Steinsstöðum og ljósleiðaratenging er til staðar. Nýlega hefur verið lagt kalt vatn að húsinu frá uppsprettu við bæinn og rotþró er nýleg.
VÉLAGEYMSLA OG HESTHÚS
Á jörðinni er um 61,2 m² vélageymsla ásamt 80,6 m² hesthúsi í bragga með stíum fyrir allt að átta hesta.
Aðstaðan hentar vel fyrir hestamennsku, geymslu véla og tækja eða annan minni búrekstur.
SVARTÁ OG ÚTIVIST
Jörðin á land að Svartá, en í ánni er meðal annars urriði. Áin hefur verið í útleigu.
Göngu- og hjólastígar hafa verið lagðir um hluta jarðarinnar og býður landið upp á fjölbreytta útivistarmöguleika í fallegu og skjólsælu umhverfi. Einnig hafa verið skoðaðir möguleikar á frekari uppbyggingu reiðleiða og golfaðstöðu.
MÖGULEG FRAMTÍÐARUPPBYGGING
Unnin hefur verið tillaga að deiliskipulagi fyrir um 17 hektara frístundabyggð innan jarðarinnar.
Samkvæmt fyrirliggjandi skipulagsuppdrætti er gert ráð fyrir samtals 18 frístundalóðum ásamt byggingarreitum, innri vegum, leiksvæði og lagnaleiðum. Einnig hafa verið unnin drög að húsateikningum fyrir fyrirhugaða uppbyggingu.
Um er að ræða áhugaverða framtíðarmöguleika sem geta aukið nýtingu og verðmæti jarðarinnar til lengri tíma, með fyrirvara um samþykki viðeigandi yfirvalda og áframhaldandi skipulagsvinnu. Mjög lítil vinna er eftir að koma skipulaginu til endanlegra samþykktar.
Heimreiðin að Merkigarði liggur í gegnum Steinsstaðahverfi og endar við bæinn. Engin almenn gegnumumferð er því um jörðina.
Merkigarður er í um 10 km fjarlægð frá Varmahlíð og um 32 km frá Sauðárkróki. Rúmlega klukkustundar akstur er til Akureyrar.
Staðsetningin er miðsvæðis í Skagafirði og þaðan er greið leið að helstu þjónustu, útivistarsvæðum og leiðum inn á hálendið.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða með tölvupósti á elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.