Fasteignaleitin
Skráð 31. jan. 2026

Dalatangi 16

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
144.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
122.900.000 kr.
Fermetraverð
852.288 kr./m2
Fasteignamat
90.300.000 kr.
Brunabótamat
70.400.000 kr.
Mynd af Kristján Baldursson
Kristján Baldursson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2083310
Landnúmer
124356
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Búið að skipta um að hluta
Þak
Ástand ekki vitað, þarfnast málunar og skoðunar næstu 5 árin
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Ofnar endurnýjaðir/Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Þak þarfnast málunar og skoðunar næstu 5 árin
Gallar
Ljós óvirk í kringum heita pottinn
Gólflistar í herbergjum, búið að saga hluta af þeim, en hlutarnir geymdir uppi á háalofti
Trausti fasteignasala kynnir fallegt og mikið endurnýjað 144,2 fm. raðhús að Dalatanga 16, 270 Mosfellsbær. Fallegt fjölskylduhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr og sólpalli 

Nánari lýsing á eigninni

Neðri hæð
Forstofa 
er með fataskáp, flísum á gólfi og gólfhita. Teppi er á stiga
Svefnherbergi/hjónaherbergi er rúmgott og með fataskápum og parketi á gólfi. Inn af herbergi er baðherbergi, lítið geymslurými er í herbergi.
Baðherbergi (innaf hjónaherbergi) er með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtu, flísar frá gólfi og upp í loft . Úr baðherbergi er útgengt út á timburverönd með heitum potti, í innréttingu inni á baðinu er krani til að láta renna í heitapottinn.
Þvottaherbergi er með handklæðaofni og innréttingu, með flísum á gólfi.  Í innréttingu er gert ráð fyrir tveimur þvottavélum og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúrinn er með rafmagnsopnun á innkeyrsluhurð, heitt- og kalt vatn. Innangengt úr íbúð.

Efri hæð
Hol
 er með harðparketi á gólfi. Úr holi að aðgengi upp á rúmgott geymsluloft.
Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingu er ofn, spanhelluborð, vínkælir, innbyggð uppþvottavél.
Tvöfaldur ísskápur sem seljandi lætur fylgja með eigninni, parket er á gólfinu.
Stofa er í samliggjandi í opnu og björtu rými með eldhúsi, með harðparketi á gólfi.
Úr stofu er gengið út á svalir og timburverönd í suðurátt. 
Svefnherbergi nr. 2 er með skáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofn og baðkari með sturtu aðstöðu með flísum frá gólfi og upp í loft.
Geymsluloft  er 18 m2 og er útbúið með innfelldum stiga sem dreginn er niður.
Bílastæði er hellulagt með snjóbræðslu fyrir framan húsið, komast tveir bílar og einnig eru bílastæði við hlið húslengjunnar.
Garður með timburverönd, búið er að reisa vegg þar sem gert er ráð fyrir sjónvarpi hjá heitum potti í suðvesturátt.
Tröppur frá verönd uppá svalir.

Samkvæmt seljanda hefur eignin verið mikið endurnýjuð af fyrri eigendum.
Eldhús var endurnýjað árið 2021-2022. 
Skipt var út öllum gólfefnum, innréttingum og innihurðum.
Baðherbergin voru bæði endurnýjuð árið 2021-2022
Búið að endurnýja  rafmagnstöflu að hluta, tengla og rofa. 
Þvottahúsi breytt í baðherbergi með aðgengi út í pott.
Geymslu hefur verið breytt í þvottahús.
Forstofa var stækkuð og settur gólfhiti.
Bakgarður grafinn niður skipt um dren- og regnvatnslagnir.
Svalir stækkaðar og pallur með heitum potti settur.
Húsið málað að utan að aftan og allt tréverk málað að framan. 
Teikningar ekki í samræmi við núverandi skipulag hússins.
Eignin er miðsvæðis og á vinsælum stað í Mosfellsbænum.  Stutt er í alla þjónustu, skóla og verslanir.

Nánari upplýsingar veitir Elísabet Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 822-4848, elisabet@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali í síma 8673040, kristjan@trausti.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/06/202582.500.000 kr.118.000.000 kr.144.2 m2818.307 kr.
02/06/202375.250.000 kr.100.900.000 kr.144.2 m2699.722 kr.Nei
08/11/201842.000.000 kr.51.500.000 kr.144.2 m2357.142 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Efstaleiti 12
Bílastæði
Skoða eignina Efstaleiti 12
Efstaleiti 12
103 Reykjavík
155.8 m2
Fjölbýlishús
412
833 þ.kr./m2
129.800.000 kr.
Skoða eignina Skólavörðustígur 16
Skólavörðustígur 16
101 Reykjavík
183.1 m2
Fjölbýlishús
2
710 þ.kr./m2
130.000.000 kr.
Skoða eignina Rjúpufell 36
Bílskúr
Skoða eignina Rjúpufell 36
Rjúpufell 36
111 Reykjavík
295.5 m2
Raðhús
925
404 þ.kr./m2
119.500.000 kr.
Skoða eignina Óðinsgata 2
Skoða eignina Óðinsgata 2
Óðinsgata 2
101 Reykjavík
130.1 m2
Atvinnuhúsn.
431
807 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin