LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir bjarta 6.herbergja vel skipulagða 155,3 m2 efri sérhæð með sérinngangi í þríbýlishúsi með bílskúr sem auðvelt er að breyta aftur í íbúð. Fimm svefnherbergi eru í dag í eigninni. Fallegt útsýni. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 125 m2 ásamt 30,3 m2 bílskúr sem auðvelt er að breyta í íbúð til útleigu.Nánari lýsing.
Komið inn um sérinngang og þaðan gengið upp steinsteyptan flísalagðan stiga í forstofu. Úr forstofunni er gengið inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarinnar.Geymsluloft er yfir hluta af íbúð með mjög góðu geymsluplássi. Ca 15-20 m2.
Eldhús var stækkað og endurnýjað 2021, falleg IKEA innrétting með ljúflokunum á skúffum, tveir bakaraofnar, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, spanhelluborð, góður borðkrókur, flísar á gólfi.
Þvottahús/búr er innaf eldhúsi, með flísalögðu gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hillur og opnanlegur gluggi
Stofan/borðstofa með stórum gluggum í norður og suður með fallegu útsýni og útgengt á svalir til suðurs og vesturs, flísalagt gólf.
Svefnherbergisgangur með flísalögðu gólfi.
Hjónaherbergi með pl.parketi á gólfi, innaf því er fataherbergi með fínum hirslum og dúk á gólfi.
Baðherbergið er upprunalegt með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting og opnanlegir gluggar.
Herbergi 1 (sem var áður sjónvarpshol, auðvelt að breyta til baka) með flísalögðu gólfi og fataskáp.
Herbergi 2 með pl.parketi á gólfi.
Herbergi 3 með pl.parketi á gólfi.
Auðvelt er að fella niður léttan millivegg á milli herbergja 2 og 3 til að gera að einu stóru herbergi (parketið er heilt undir milliveggnum).Herbergi 4 með pl.parketi á gólfi og útgengi út á svalir til suðurs.
Bílskúrinn er 30,3 m2 og var áður í útleigu, en er notaður í dag sem ljósmyndastúdíó. Í bílskúrnum er parket á gólfi, sturtuklefi og salerni, 3 gluggar eru í alrýminu. Stórt tvöfalt bílastæði er fyrir framan bílskúrinn og fylgir eigninni.2008 var allt gler í íbúðinni endurnýjað, tvöfalt gler í öllum gluggum.
Mikið af rofum og tenglum hafa verið endurnýjaðir.
2021 var eldhús og tæki endurnýjuð.
Undir stiga er hjólageymsla.
Um er að ræða rúmgóða fjölskyldueign með bílskúr sem auðvelt er að búa til útleigueiningu. Leik- og grunnskólar eru í nágrenninu ásamt verslunum og heilsugæslu. Góðar samgöngur. Stutt í náttúruna en þar eru hjóla og göngustígar sem liggja til allra átta. Fossvogsdalur er í nokkurra mínútna göngufæri. Þar er einstök náttúra. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is