Fasteignaleitin
Skráð 8. júlí 2026

Árskógar 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
94.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
843.717 kr./m2
Fasteignamat
71.550.000 kr.
Brunabótamat
49.450.000 kr.
Mynd af Herdís Valb. Hölludóttir
Herdís Valb. Hölludóttir
Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2053897
Landnúmer
112543
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
13
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gimli fasteignasala og Herdís Valb. Hölludóttir kynna:  Falleg og björt 3ja herbergja útsýnis íbúð á 4. hæð að Árskógum 6, 109 Reykjavík.
Eignin skiptist í: Forstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu og eldhús samtals skráð 89,4 fm íbúð og 5,3 fm sérgeymslu í kjallara.
Eignin Árskógar 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-3897, birt stærð 94.7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 04-04, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Herdísi í síma 694-6166 eða herdis@gimli.is


NÁNARI LÝSING:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með parketi á gólfi og fataskáp. Þar við hlið er herbergi með innfeldum fataskáp og parketi á gólfi. Gengt því er rúmgott baðherbergi með vinildúk á gólfi, flísum á veggjum, hvítri innréttingu og þreplausri sturtu með glerþilju. Inn af baðherbergi er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Eldhús er með u-laga viðar innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél. Borðstofan og stofan eru rúmgóðar og útgengi er úr stofu út á skjólgóðar útsýnissvalir til vesturs. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Geymslan er með hillum og er staðsett í kjallara hússins. 

Samantekt: Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í eftirsóttu og vel viðhöldu húsi sem er ætlað fyrir 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og er húsvörður starfandi í húsinu. Að auki er í boði mikil þjónusta í húsinu og má meðal annars nefna sameiginlegan matsal á jarðhæðinni sem býður upp á heitan mat í hádeginu.
Ýmis félagsstarfsemi fer einnig fram á jarðhæðinni auk þess sem hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa eru starfræktar þar. Góð aðkoma er á lóðina sem er fullfrágengin og með nægum bílastæðum. Stutt í helstu þjónustu, s.s. verslanir, heilsugæslu ofl.
* Frekari upplýsingar um Frístunda– og félagsstarf í Árskógum
Nánari upplýsingar veitir: Herdís Valb. Hölludóttir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur herdis@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/05/201425.100.000 kr.32.000.000 kr.94.7 m2337.909 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustabryggja 13
Skoða eignina Naustabryggja 13
Naustabryggja 13
110 Reykjavík
96.5 m2
Fjölbýlishús
312
751 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Flúðasel 61
Skoða eignina Flúðasel 61
Flúðasel 61
109 Reykjavík
96.1 m2
Fjölbýlishús
312
623 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Helluvað 7
Bílastæði
Opið hús:09. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Helluvað 7
Helluvað 7
110 Reykjavík
95.6 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hjarðarhagi 28
Skoða eignina Hjarðarhagi 28
Hjarðarhagi 28
107 Reykjavík
99.7 m2
Fjölbýlishús
312
781 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin