Fasteignaleitin
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 1. okt. 2026

Lautasmári 51

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
83.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
833.135 kr./m2
Fasteignamat
66.850.000 kr.
Brunabótamat
49.900.000 kr.
Mynd af Jón Gunnar Gíslason
Jón Gunnar Gíslason
Fasteignasali
Byggt 1993
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2063853
Landnúmer
115419
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
síðan húsið var byggt
Raflagnir
síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
síðan húsið var byggt
Þak
síðan húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir: Lautasmára 51, 201 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 03-02. Björt og falleg, vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í Smárahverfi Kópavogs. Þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar Gíslason Fasteignasali, í síma 8487099, tölvupóstur jongunnar@fstorg.is.


Nánari lýsing:
Forstofa er með stórum og góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi, góðum gluggum þar sem stofa, borðstofa og eldhús tengjast.
Eldhús er með rúmgóðum og fallegum innréttingum. Bakarofn í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni, spanhelluborði og veggháf.
Útgengt er úr alrými út á svalir sem snúa til vesturs.
Baðherbergi er snyrtilegt flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtu, innréttingu með vaski og speglaskápa fyrir ofan, innbyggðum krana í vegg, upphengt salerni og handklæða ofn.
Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni með parketi á gólfum annað með stórum fataskáp.
Þvottahús er innan íbúðar með góðum skápum og vaski.
Geymsla í sameign fylgir eigninni sem er um 6.fm en er ekki skráð samkv. þjóðskrá íslands og er því ekki inn í fermetratölu.
Þá er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Frábær eign á vinsælum stað þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.

Eignin Lautasmári 51 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-3853, birt stærð 83.9 fm.

Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar Gíslason Fasteignasali, í síma 8487099, tölvupóstur jongunnar@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/12/201729.400.000 kr.43.200.000 kr.83.9 m2514.898 kr.Já
22/07/201524.050.000 kr.27.300.000 kr.83.9 m2325.387 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Efstihjalli 7
Efsta hæð
Opið hús:01. okt. kl 17:45-18:10
Skoða eignina Efstihjalli 7
Efstihjalli 7
200 Kópavogur
94 m2
Fjölbýlishús
413
722 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Langalína 15
Bílastæði
Opið hús:08. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Langalína 15
Langalína 15
210 Garðabær
89.1 m2
Fjölbýlishús
312
1031 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 3 íb303
Efsta hæð
Opið hús:04. okt. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Eskiás 3 íb303
Eskiás 3 íb303
210 Garðabær
91 m2
Fjölbýlishús
312
1043 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
78.5 m2
Fjölbýlishús
212
929 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin