Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2026

Hraunbær 190

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
92.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
687.836 kr./m2
Fasteignamat
64.050.000 kr.
Brunabótamat
51.200.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 1967
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2045344
Landnúmer
111090
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Rúmgóðar
Upphitun
Ofnar / Þarfnast skoðunar og lagfæringa.
Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérmerktu bílastæði á eftirsóttum stað að Hraunbæ 190, 110 Reykjavík. Eignin er skráð skv. FMR 92,9 fm og skiptist í anddyri, rúmgóða stofu með góðu borðstofuplássi, svalir, tvö svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Sérgeymsla er á jarðhæð ásamt sameiginlegu þvottaherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, verslanir og veitingahús. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

*** Að sögn seljanda hafa eftirfarandi endurbætur átt sér stað. Stigagangur var endurbættur og teppalagður 2021. Múrverk var lagað og húsið málað vetur 2024/ vor 2025. Einnig var skipt um hluta glers. Járn og pappi á þaki var endurnýjað 2021 ásamt nýjum þakrennum. Hitaveituofn í eldhúsi og baðherbergi voru nýlega endurnýjaðir.

Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Lofthár fataskápur og eikarparket á gólfi. Rýmið tengir saman öll rými eignarinnar. 
Eldhús: Flísalagt eldhús með dökkri endurnýjaðri innréttingu. Gott skápapláss, bakaraofn, ísskápur og gluggi með opnanlegu fagi. Eldhúsinnréttingin var endurnýjuð árið 2024.
Stofa/borðstofa: Stofan og borðstofan eru rúmgóðar í björtu samliggjandi rými með eikarparketi á gólfum. Úr stofu er útgengt á svalir með útsýni í stóran gróinn sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: Rúmgott með innbyggðum loftháum fataskáp og eikarparketi á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi er svefnherbergi með eikarparketi á gólfi.
Baðherbergi: Mikið endurnýjað árið 2024 með hvítri innréttingu búinni handlaug með neðri skúffum og speglaskáp, salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og flísalagt í hólf og gólf. 
Geymsla: Á jarðhæð sameignar er sérgeymsla. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Einnig er stórt sameiginlegt þvottahús með sér tengjum fyrir þvottavél.
Lóð: Mjög stór sameiginlegur garður og lóð umlykur húsið. Búið er að setja upp rafhleðslustaura á sameiginlegt bílastæði húss. Íbúar húss eru búin að sérmerkja sér bílastæði á sameiginlegu bílaplani. 

Virkilega skemmtileg íbúð á vinsælum stað þar sem göngufæri er í flesta þjónustu, eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur og góðar almenningssamgöngur. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson fasteignasali S: 844-6516 / netfang: ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér ragnar@fstorg.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/12/202350.750.000 kr.54.000.000 kr.92.9 m2581.270 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðhöfði 15 (301)
Opið hús:17. okt. kl 13:30-14:15
Breiðhöfði 15 (301)
110 Reykjavík
80,1 m2
Fjölbýlishús
211
998 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Æsufell 2
Skoða eignina Æsufell 2
Æsufell 2
111 Reykjavík
92 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 11
Bílastæði
Skoða eignina Sóleyjarimi 11
Sóleyjarimi 11
112 Reykjavík
97,7 m2
Fjölbýlishús
312
838 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Grundarhús 7
Skoða eignina Grundarhús 7
Grundarhús 7
112 Reykjavík
95,7 m2
Fjölbýlishús
312
834 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin