Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna íbúð 202 við Álftamýri 28, 108 Reykjavík
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í mikið endurnýjuðu fjölbýlishúsi á þessum eftirsótta stað miðsvæðis í borginni.
Stærð íbúðinnar er 59,1 m², þar af geymsla 4,4 m².
Upplýsingar veitir Elka fasteignasali í síma 863-8813 // elka@fstorg.is
Nánari lýsing;
Komið er inn í parketlagða forstofu og opið rými sem leiðir inn í önnur rými eignarinnar.
Stofa/borðstofan er rúmgóð og björt með útgengi á suðursvalir frá stofunni. Svalirnar eru lokaðar á endunum sem skapar gott skjól
Eldhúsið er flísalagt, með hvítri innréttingu með grárri borðplötu. Góður borðkrókur er í eldhúsinu
Baðherbergið var endunýjað árið 2010 og er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og sturtu.
Svefnherbergi er parketlagt með góðum skápum.
Fjölbýlishúsið var mikið endurnýjað 2021 til 2022 þar sem gert var við þak, þakkant, tréverk, glugga, sprungur, svalir og svalahandrið. Einnig var málað og gert við sameiginlegar hurðir að húsinu.
* Þakjárn endurnýjað, það pappað með bræddum samskeytum, lektað og skrúfað niður.
* Settar upp snjógildrur á þakfleti ofan við framhlið hússins.
* Skipt um timbur í þakkanti, þakkantur málaður ásamt öðru tréverki
* Skipt var um glugga í stofu árið 2022.
* Árið 2024 var endurnýjun á snjóbræðslu og voru hellur lagaðar og lagðar upp á nýtt.
* Rafmagn var endurnýjað árið 2010 ásamt hurðum (eldvarnarhurðar), Dren var endurnýjað árið 2012.
Húsgjöld eignar eru nú pr. mán: 24.793 kr.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.