Fasteignaleitin
Skráð 3. feb. 2026

Smyrlahraun 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
360.7 m2
10 Herb.
8 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
179.900.000 kr.
Fermetraverð
498.752 kr./m2
Fasteignamat
194.000.000 kr.
Brunabótamat
160.900.000 kr.
Mynd af Einar Örn Ágústsson
Einar Örn Ágústsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2079107
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegt
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler, upphaflegt
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Raki
Hraunhamar fasteignasala kynnir: Smyrlahraun 19, Hafnarfirði. Tvær íbúðir

Um er að ræða 360,7 fermetra einbýlishús með tveimur 5 herbergja íbúðum á hvorri hæð og tvöföldum bílskúr. Íbúð á hæð er skráð 175,3 fm, neðri hæð 136,8 og bílskúr 48,6 fm. Efri hæð er að miklu leyti upprunaleg á meðan neðri hæð hússins hefur verið tekin í gegn á undanförnum árum. Húsið er byggt árið 1972 og er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Frábær staðsetning á eftirsóttum stað í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttasvæði.


Skipulag eignar: 
Efri hæð:

Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum skápum. Inn af er gestasnyrting með klósetti og handlaug. Tveir stigar eru úr holi, annar gengur upp í svefnálmu og hinn niður á neðri hæð. Frá holi er stór parketlögð stofa/borðstofa með stórum gluggum á þremur hliðum sem hleypa inn mikilli birtu. Eldhús er dúklagt, með u-laga eikarinnréttingu, uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, helluborð og viftu. Nóg skápa- og borðpláss. Frá eldhúsi er gengið inn í þvottahús. Svefnálman er á efri stalli. Svefnherbergin eru fjögur talsins, parketlögð með eikarskápum í tveimur þeirra. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, hornbaðkari, klósetti, handklæðaofni og handlaug.

Neðri hæð:
Gengið er inn í flísalagða forstofu með góðum skáp og fatahengi. Inn af er parketlagður gangur með tveimur svefnherbergjum og innangengt í bílskúr. Herbergin eru parketlögð. Frá gangi er gengið niður stiga inn í stofu. Alrýmið er parketlagt með útgengi út á hellulagða verönd. Parketlagt svefnherbergi frá stofu. Eldhús er með hvítri innréttingu, uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, helluborð og viftu ásamt borðkrók. Inn af eldhúsi er parketlagt svefnherbergi. við hliðiná eldhúsi er síðan þvottahús/geymsla.  Baðherbergið er flísalagt með upphengdu klósetti og hvítri innréttingu með handlaug.  

Bílskúrinn er tvöfaldur með tveimur innkeyrsludyrum. Að innan er rýmið einn geimur með steyptu gólfi. Skúrinn er með heitu og köldu vatni. 

Lóðin, sem er 687 fermetrar, er grasivaxin ásamt trjágróðri við lóðarmörk. Húsið snýr til suð-austurs með verönd við inngang á efri hæð, hellulagt svæði framanvert við neðri hæð og að baka til. Stór steypt innkeyrsla með nægum bílastæðum. Steypt sorpgeymsla við stétt.

Húsið er að mestu leyti í upprunalegu ástandi  og er kaupendum bent á að skoða húsið vel og hafa það í huga við skoðun. Ekki hefur verið gerð formleg ástandsskoðun á eigninni. 

Sjarmerandi eign með karakter og sál. Húsið býður upp á mikla möguleika. Einstök staðsetning í göngufæri við miðbæ Hafnarfjarðar og allt það sem hann hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar veita: 
Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali, einar@hraunhamar.is s. 888-7979
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, hlynur@hraunhamar.is s. 698-2603


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/11/201257.100.000 kr.46.000.000 kr.360.7 m2127.529 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin