Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:
KLAPPARSTÍGUR 14 - GLÆSILEG PENTHOUSE ÍBÚÐUm er að ræða einstaka 117,5 fm penthouse/þakíbúð á 5.hæð í 8 íbúða húsi byggt 2006 sem stendur mjög vel með tilliti til útsýnis sem er 360 gr og er sjávarútsýnið einstakt. Lyfta er upp í íbúðina með sérstökum aðgangscóða. Mikil lofthæð er í íbúðinni og þá sérstaklega í stofunni og miklir gluggar á þrjá vegu. Tvennar svalir ásamt 45 fm verönd með miklu útsýni.
Mjög mikið var lagt upp úr vönduðu efnisvali við smíði íbúðarinnar þar sem ekkert var til sparað í búnaði, innréttingum gólfefnum og fl. en íbúðin er hönnuð af Ástu Sigríði Ólafsdóttur arkitekt.
Smellið hér til að sjá myndband af eigninniNÁNARI LÝSING:Úr lyftunni sem gengur upp í íbúðina er komið út í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og eikarfataskápum.
Úr forstofunni er bæði gengt um glerhurð í íbúðina og ennig beint úr á 45 fm verönd til vesturs.
Stofan og eldhúsið er eitt stórt rými með eikarparketi á gólfum.
Stofan er með mikilli lofthæð og bogadregnum gólfsíðum gluggum til norðurs og austurs með einstöku sjávarútsýni.
Litlar svalir til austurs eru út frá stofunni.
Eldhúsið er með vandaðri háglanslakkaðri innréttingu með svörtum granítstein, eldaeyja með svartri granítborðplötu og gashelluborði.
Ísskápur og frystir, Miele eldhústækjasamstæða með m.a innbyggðri Miele kaffivél.
Baðherbergið er einstaklega glæsilegt með vandaðri flísalögn, innrétting með tveim vöskum, innfelldur vaskur, baðkar og walk in sturta ásamt handklæðaofni og eru öll blöndunartæki innbyggð frá Vola.
Þvottahús er innan íbúðar með góðri innréttingu og vaski.
Barnaherbergið er rúmgott með parketi og plássgóðum speglafataskápum.
Stórt hjónaherbergi með parketi og miklum eikar/spegla fataskápum.
Útgengt er úr hjónaherbergi bæði út á svalir til vesturs og einnig út á veröndina sem snýr til vesturs og norðurs.
Allt ljósakerfi og hitastýring búðarinnar er frá Gira og hönnun ljósabúnaðar frá Lumex. Mynddyrasími og Bang & Olufsen hljóðkerfi.
Í kjallara er rúmgóð sérgeymsla ásamt saml. þvottahúsi.
Eignin Klapparstígur 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-8816, birt stærð 117.5 fm. Nánar tiltekið eign merkt 05-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala