Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali (s. 775-1515 / jason@betristofan.is), kynna: Mávanes 9, 210 Garðabæ – Frumbyggjar selja einstaklega vel staðsett einbýlishús með glæsilegum arkitektúr á fallegri sjávarlóð sunnan megin á Arnarnesinu.
Um er að ræða upprunalegt 316,4 m² einbýlishús sem teiknað var af Helga Hjálmarssyni arkitekt. Húsið stendur á 1.400 m² suðvesturlóð alveg við sjóinn sem tryggir ómótstæðilegt og óhindrað útsýni. Húsið var reist árið 1970 og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi.
Skipting eignarinnar:
Aðalhæð: 211,9 m²
Bílskúr: 62,8 m²
Bátaskýli / geymsla: 41,7 m²
Samtals: 316,4 m²
Lóðarstærð: 1.400 m²
Verð: Tilboð
NÁNARI LÝSING:
Anddyri og alrými:
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu.
Gestasnyrting: Snyrtileg og flísalögð gestasnyrting staðsett við anddyrið.
Skrifstofa/Svefnherbergi: Rúmgott herbergi sem nýtist vel sem skrifstofa eða svefnherbergi. Fallegur gluggi í herberginu með sjávarútsýni.
Stofa: Björt og afar rúmgóð stofa með arni og glæsilegu útsýni yfir hafið. Úr stofu er vönduð rennihurð út á pall með útiarni og þaðan áfram út í garð.
Borðstofa: Opin og falleg borðstofa. Rýmið er einstaklega bjart með gluggum til norðurs og stórum gluggum sem snúa mót suðri með sjávarútsýni.
Eldhús: Sérsmíðuð eldhúsinnrétting og parket á gólfi.
Sjónvarpsstofa: Gengið er niður þrjár tröppur á neðri pall þar sem sjónvarpsstofan er staðsett. Frá efri palli er gengið út á skjólsælan pall til suðurs með útiarni.
Auka anddyri & þvottahús: Sér þvottahús er staðsett á milli eldhúss og auka anddyris.
Svefnherbergisgangur:
Gangurinn er teppalagður og leiðir inn í svefnálmu hússins.
Baðherbergi: Staðsett í álmunni, með sturtu.
Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi eru í álmunni.
Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott með fataherbergi og sérbaðherbergi innaf sem er útbúið baðkari.
Bílskúr og neðri hæð (bátaskýli/geymsla):
Bílskúr: Skráður 62,8 m². Rúmgóður með tveimur innbyggðum geymslum. Hleðslupláss og gott athafnasvæði.
Bátaskýli/Geymsla: 41,7 m² rými á neðri hæð sem snýr til suðurs út í garðinn. Rýmið er með bæði hefðbundinni hurð og bílskúrshurð. Þetta rými býður upp á mikla möguleika og gæti nýst sem bátaskýli, vinnustofa, geymsla eða jafnvel auka svefnherbergi.
Lóð og ytra byrði:
Lóðin: 1.400 m² stóreignarlóð sem snýr til suðvesturs alveg niður að sjó. Einstök staðsetning á Arnarnesinu.
Bílastæði: Gott hellulagt plan með stæði fyrir 3 bíla.
Þak: Upprunalegt þak sem hefur fengið reglulegt og gott viðhald ásamt eftirliti undanfarin ár.
Niðurlag: Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast vel hannað arkitektaheimili á einum eftirsóttasta stað landsins. Staðsetningin við sjávarlóð á Arnarnesi gerist ekki mikið betri.
Eignin er mikið upprunaleg, Rakaummerki á nokkrum stöðum

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.