Fasteignaleitin
Skráð 25. nóv. 2026

Engihjalli 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
78.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.900.000 kr.
Fermetraverð
754.161 kr./m2
Fasteignamat
53.750.000 kr.
Brunabótamat
42.950.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1979
3. hæð af 8
Garður
Svalir
Baðkar
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2060056
Landnúmer
114229
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
??
Raflagnir
??
Frárennslislagnir
??
Gluggar / Gler
??
Þak
??
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Parket á íbúð er orðið slitið.
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Engihjalla 17 í Kópavogi. Um er að ræða fallega eign með góðu útsýni og einstaklega rúmgóðum austursvölum sem ná eftir endilangri íbúðinni. Eignin skiptist í forstofu/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgóða stofu og borðstofu. Eigninni fylgir sérgeymsla í kjallara og er sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Góð staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og stofnbrautir. Matvöruverslun er í næsta nágrenni og skóli og leikskóli í nokkurra mínútna göngufjarlægð. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð eignarinnar samkvæmt fasteignaskrá HMS er 78,1 m² - og eru allir innan íbúðar. Sérgeymsla í kjallara sem tilheyrir eigninni, er ekki talin með í skráðum fermetrum íbúðar.

* Björt og vel skipulögð 3ja herbergja, 78,1 m² íbúð með sér geymslu í kjallara.
* Einstaklega rúmgóðar austursvalir sem ná eftir endilangri íbúðinni.
* Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni með sér tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Opið og rúmgott hol tengir saman öll rými í íbúðinni. Fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: Hálf opið á tvo vegu, með flísum á gólfi. Hvít innrétting með góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Gert ráð fyrir borðkrók við glugga.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými með parketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar austursvalir sem ná eftir endilangri íbúðinni.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskápum og parket á gólfi. Útgengið á svalir einnig frá hjónaherbergi.
Barnaherbergi: Með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu við handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni. 
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni í kjallara hússins. Geymslan er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.
Þvottahús: Sameiginlegt með tveimur öðrum íbúðum, staðsett á hæðinni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara fyrir hverja íbúð.
Sameign: Snyrtileg sameign með lyftu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. 

Staðsetning: Eignin er á góðum og rótgrónum stað í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og stofnbrautir. Matvöruverslun er í næsta nágrenni og skóli og leikskóli í nokkurra mínútna göngufjarlægð. Næg bílastæði.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is 
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/02/202653.750.000 kr.54.000.000 kr.78.1 m2691.421 kr.Já
23/07/201826.100.000 kr.34.500.000 kr.78.1 m2441.741 kr.Já
25/04/201622.400.000 kr.26.000.000 kr.78.1 m2332.906 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kjarrhólmi 30
Hleðslustöð
Opið hús:30. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Kjarrhólmi 30
Kjarrhólmi 30
200 Kópavogur
84,7 m2
Fjölbýlishús
312
809 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Vefarastræti 20
Hleðslustöð
Skoða eignina Vefarastræti 20
Vefarastræti 20
270 Mosfellsbær
59 m2
Fjölbýlishús
211
964 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Langholtsvegur 56
Langholtsvegur 56
104 Reykjavík
93,2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
750 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Langholtsvegur 56
Langholtsvegur 56
104 Reykjavík
93,2 m2
Hæð
413
750 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin