Afar falleg, björt og rúmgóð 5 herbergja sérhæð með aukaíbúð í bílskúr á eftirsóttum stað í Teigunum í Reykjavík. Eignin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti á smekklegan hátt. Staðsett nálægt allri helstu þjónustu og rétt við útvistarperlu Laugardalsins.
** 4 svefnherbergi
** Möguleiki á tveimur útleigueiningum
** Íbúð mikið endurnýjuð að innan
** Frábær staðsetning
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 184,8m2 þar af bílskúr 38m2.
Eignin skiptist í anddyri, hol/skála, eldhús, borðstofu, stofu, baðherbergi, 3 herbergi á aðalhæð og 1 herbergi í kjallara, í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sameiginlegt baðherbergi, bílskúr sem hefur verið gerður að 2ja herbergja ósamþykkta íbúð.
Nánari lýsing
Anddyri er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi.
Hol/skáli tengir saman flest rými, er með fatahengi og góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Baðherbergi I var stækkað og endurnýjað 2021/2022 með innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, baðkari, "walk-in" sturtu og handklæðaofni. Flísar á gólfi og hluta veggja. Fallegur hringgluggi prýðir rýmið með opnanlegu fagi.
Svefnherbergi II er rúmgott með góðu skápaplássi og útgengi út á svalir og tröppur niður í garð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III er mjög rúmgott og er með rennihurð sem opnast inn í stofu. Parket á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu frá HTH sem hefur verið lökkuð, mikið skápapláss, hvítur steinn á borðum og barborð úr gegnheilli hnotu, stæði fyrir uppþvottavél. Flísar á gófli.
Borðstofa björt og opin inn af eldhúsi. Skv. upprunalegum teikningum var áður svefnherbergi og hefur verið opnað á milli eldhúss og hols ásamt því að útbúið hefur verið op inn í stofu. Útgengi á svalir. Parket á gólfi.
Stofa er mjög rúmgóð og björt með bogagluggum sem gefur rýminu fallegt yfirbragð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi IV er í kjallara og gæti nýst sem útleigueining þar sem aðgengi er að baðherbergi. Parket á gólfi.
Baðherbergi II er með handlaug, salerni og "walk-in" sturtu með steingólfi. Gluggi með opnanlegu fagi. Vinylflísar á hluta af gólfi.
Þvottahús er sameigninlegt með kjallaraíbúð og er það snyrtilegt og rúmgott.
Sérgeymsla fylgir eigninni og er undir útitröppum með bæði rafmagn og hita.
Bílskúr hefur verið innréttaður sem 2ja herbergja ósamþykkt íbúð sem nýst getur sem útlegueining. Hægt er að opna þaðan út á yfirbyggða verönd/skáli sem byggð hefur verið í garði og skv. hefð hefur nýst eign 0101 sem hefur staðið straum af viðhaldi skálans. Einnig er rúmgóð upphituð geymsla sem er aðgengileg á framhlið bílskúrsins.
Framkvæmdir síðustu ára samkvæmt upplýsingum frá seljanda:
2010 Þakjárn endurnýjað skv. upplýsingum frá fyrri eiganda
2010 Rafmagn endurnýjað í íbúð skv. upplýsingum frá fyrri eiganda
2021 Gluggar í íbúð endurnýjaðir. Einnig voru gluggar í kjallaríbúð verið endurnýjaðir 2026.
2021 Rennur yfirfarnar
2022 Skólplagnir endurnýjaðar
2022 Útitröppur lagfærðar
2022 Parket endurnýjað í íbúð
2025 Allir ofnar innan íbúðar yfirfarnir
2025 Baðherbergi í bílskúr endurnýjað og nýtt gólfefni í bílskúr
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.